Vöruskipti versna um 28 milljarða á milli ára 30. desember 2006 06:15 123 milljarða vöruskiptahalli á fyrstu ellefu mánuðum ársins Miklar verðhækkanir á útflutningsvörum hafa stuðlað að því að vöruskiptahallinn er ekki enn slakari en raun ber vitni.
Vöruskiptahallinn versnaði til muna á fyrstu ellefu mánuðum ársins miðað við árið í fyrra. Verðhækkanir og gengislækkun skýra helst aukningu útflutnings á árinu 2006 á meðan stóriðjuframkvæmdir skýra aukningu innflutnings. Vöruskipti voru neikvæð um 13,5 milljarða króna í nóvember samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í gær. Innflutningur nam 33 milljörðum króna en útflutningur tæpum 20 milljörðum. Hallinn tvöfaldaðist frá því í október sem skýrist fyrst og fremst af auknum innflutningi milli mánaða á meðan útflutningur stóð nánast í stað. Mest jókst innflutningur á eldsneyti en sá liður getur sveiflast mjög milli mánaða. Litið til fyrstu ellefu mánaða ársins má sjá að vöruskiptahallinn hefur aukist töluvert milli ára. Hann nemur nú 123 milljörðum króna en var tæpir 94,7 milljarðar króna fyrir sama tímabil í fyrra. Samdráttur varð í öllum helstu vöruflokkum útflutnings í magni mælt nema í álútflutningi. Í Morgunkorni Glitnis segir að ef ekki kæmi til hækkun á heimsmarkaðsverði fyrir helstu útflutningsvörur Íslendinga væri staðan enn verri en raun ber vitni. Þær hækkanir og gengislækkun skýra helst að útflutningsverðmæti jókst um átján prósent á árinu. Aukningu innflutnings má helst rekja til stóriðjuframkvæmda. Líklegt þykir að draga muni verulega úr halla á vöruskiptum á komandi misserum. Í Morgunkorninu er þessu til stuðnings bent á að álútflutningur vaxi hröðum skrefum og innflutningur á fjárfestingarvöru komi væntanlega til með að minnka verulega með lokum stóriðjuframkvæmda. Við það bætist svo að nú hægi á annarri fjárfestingu, jafnt atvinnuvega sem í íbúðarhúsnæði. Þar að auki sé gert ráð fyrir að einkaneysla standi í stað eða dragist lítillega saman á næsta ári.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira