Seðlabankinn varaði við evrubreytingu 29. desember 2006 06:45 Davíð Oddsson. Seðlabankastjóri Seðlabankinn er ekki fylgjandi því að helstu fjármálafyrirtæki landsins geri reikninga sína upp í erlendum gjaldmiðli. Seðlabankinn varaði Straum-Burðarás við því að gera slíkar breytingar.
Seðlabanki Íslands varaði Straum-Burðarás við því að nýta sér heimild ársreikningaskrár til að færa bókhald og semja ársreikning sinn í evrum. Þetta kom fram í svarbréfi Seðlabanka Íslands til Fréttablaðsins við fyrirspurn um samskipti Straums-Burðaráss og Seðlabankans í tengslum við breytingar þess fyrrnefnda. Á blaðamannafundi í Seðlabankanum í síðustu viku, þegar tilkynnt var um 25 punkta stýrivaxtahækkun bankans, vísaði Davíð Oddsson seðlabankastjóri í bréf frá Straumi-Burðarási til Seðlabankans þar sem fram komi að í Svíþjóð megi fjármálafyrirtæki gera upp í evrum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var hvergi vísað til sænskra laga í bréfinu og staðfesti Seðlabankinn það með svarbréfi sínu. Í svarbréfinu kemur fram að í umsókn Straums-Burðaráss til Seðlabankans, um að hafa sérstakan jákvæðan gjaldeyrisjöfnuð til varnar gengisáhrifum á eiginfjárhlutfall, standi að bankinn hefði óskað eftir heimild ársreikningaskrár til að færa bókhald og semja ársreikning sinn í evrum. Seðlabankinn hafi veitt heimildina um jákvæðan gjaldeyrisjöfnuð en um leið varað við því að Straumur-Burðarás nýtti sér heimild ársreikningaskrár. Seðlabankinn er ekki fylgjandi því að helstu fjármálafyrirtæki landsins geri reikninga sína upp í erlendum gjaldmiðli, samkvæmt bréfinu. Slík umskipti gætu dregið úr virkni innlendra fjármálamarkaða og þar með úr áhrifamætti peningastefnu Seðlabankans. Viðskipti fjármálafyrirtækja við Seðlabanka Íslands séu í íslenskum krónum og ekki sé fyrirsjáanleg nein breyting á því. Þau viðskipti varði meðal annars greiðslumiðlun í landinu, reglubundna útvegun lauss fjár og úrræði við lausafjárvanda. Bæði Landsbankinn og Glitnir hafa upplýst að ekki séu sérstök áform uppi um að fara sömu leið og Straumur-Burðarás þótt málið sé stöðugt til skoðunar. Kaupþing hefur hins vegar ekki viljað gefa upp fyrirætlanir sínar í þessum efnum. Talsmenn Straums-Burðaráss vildu ekki tjá sig sérstaklega um málið.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira