Hlöllabátum fórnað til að rýma fyrir Zimsenhúsinu? 14. desember 2006 06:15 Zimsen húsið Hið sögufræga hús var flutt í byrjun maí til tímabundinnar geymslu út á Granda. MYND/Arnór
Fyrirtækið Minjavernd hefur lagt fram sex tillögur um nýja staðsetningu fyrir Zimsenhúsið sem áður var í Hafnarstræti. Fyrsta tillaga Minjaverndar er að Hlöllabátar og ísbúð á Ingólfstorgi verði rifin og Zimsen húsinu komið fyrir þar. „Sú starfsemi gæti flust inn í húsið ef vill en að öðru leyti nýttist það fyrir verslun eða þjónustu. Kostir eru meðal annars þeir að auka skjól á Ingólfstorgi en galli að kaupa þyrfti upp fyrirliggjandi eignir eða útvega viðkomandi rekstri endurgjaldslaust húsnæði í staðinn," segir Minjavernd. „Þetta hljómar skelfilega. Húsin eru ekki til sölu," segir Sigurður H. Garðarsson, sem á bæði rekstur Hlöllabáta og ísbúðarinnar og fasteignirnar sjálfar, aðspurður um hvernig honum lítist á hugmyndir Minjaverndar. Athyglisvert er að Minjavernd ræddi ekki við Sigurð um málið áður en hugmyndir fyrirtækisins voru lagðar fyrir borgaryfirvöld. Ef menn eru með svona hugmyndir þá eiga þeir náttúrulega að tala við mann áður en þeir fara lengra með þær," segir Sigurður sem hafði ekki heyrt um hugmyndir Minjaverndar fyrr en Fréttablaðið færði honum tíðindin. „Maður er bara heppinn að sitja." Minjavernd telur bílastæði við Grófina vera aðgengilegustu staðsetninguna fyrir Zimsenhúsið. Það er í eigu borgarinnar sjálfra. „Það styður ágætlega önnur hús sömu kynslóðar í kring," segir Minjavernd um þá lóð. Hinir fjórir staðirnir sem Minjavernd nefnir eru sunnanvert við Ingólfstorg, Viðey, horn Bergstaðastrætis og Spítalastígs og í núverandi götustæði við Grófina 1. Tillögur Minjaverndar voru ræddar á síðasta fundi stjórnar skipulagssjóðs Reykjavíkur. Á fundinum kom fram að Minjavernd væri ekki ein um áhuga á húsinu. Lýsti stjórnin jafnframt vilja sínum til þess að í húsinu yrði áfram verslunarrekstur. gar@frettabladid.is Hlöllabátar Hús Hlöllabáta var byggt árið 1994.mynd/þök . Þorsteinn Bergsson. Framkvæmdastjóri Minjaverndar hf.MYND/GVA .
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira