CCP verður útskrifað í janúar 14. desember 2006 06:30 Hilmar V. Pétursson, framkvæmdastjóri ccp Félagið telst ekki lengur vera sprotafyrirtæki eftir að velta félagsins fór yfir einn milljarð króna.
CCP verður útskrifað úr samtökum sprotafyrirtækja (SSP) eftir að velta félagsins fór yfir einn milljarð króna á þessu ári. Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, segir að sprotafyrirtæki sé skilgreint sem fyrirtæki er hafi veltu undir einum milljarði króna og býst við útskriftarathöfn í janúar. „Við viljum hvetja önnur íslensk sprotafyrirtæki til þess að fylgja í okkar fótspor. Ef við getum þetta þá hljóta fleiri að geta það líka.“ Rekstur félagsins hefur gengið vel á þessu ári. Velta CCP nam um 1,3 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins og var hagnaður á sama tíma um 370 milljónir króna. CCP hefur vaxið gríðarlega á þessu ári en velta alls síðasta árs var 700 milljónir króna. „Leikjabransinn er svona, þú tekur inn í kassann á ákveðnum tímabilum og ferð svo út í endurfjárfestingar.“ CCP kynnti nýja útgáfu af netleiknum EVE-online þann 28. nóvember og hafa 300-400 nýir þátttakendur bæst við á hverjum degi. Nýtt heimsmet var slegið á sunnudaginn þegar 33 þúsund manns voru að spila á sama tíma. „Fyrra metið var 30 þúsund manns þannig að þetta er töluverð bæting. Það fylgir þessum nýju útgáfum að menn verða spenntir og fara að spila á fullu.“ Hilmar bendir á að enginn annar leikur leyfir svona mikla þátttöku á sama tíma á sama miðlara (server). „Samkeppnisaðilar okkar leyfa vanalega þrjú til fimm þúsund manns að spila samtímis á sama server.“ Erlendir fjárfestar hafa sýnt félaginu áhuga og hefur General Catalyst Partners, bandarískur fjárfestingasjóður, eignast fimmtán prósenta hlut í CCP.
Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Sjá meira