Hækkunarferli talið lokið 4. nóvember 2006 06:15 Davíð Oddsson seðlabankastjóri „
Eitt af því sem vekur athygli við síðustu verðbólguspá Seðlabankans er hversu hárri verðbólgu bankinn spáir á allra næstu mánuðum,“ segir greiningardeild Landsbanka Íslands og telur spá bankans of háa til skamms tíma litið. „Skammtímaspár bankans hafa verið óvenju slæmar í ár. Þannig var spáin allt of lág í mars, en allt of há í júlí,“ segir deildin í nýrri umfjöllun. Ákvörðun Seðlabankans um óbreytta stýrivexti var í samræmi við spá greiningardeilda bankanna og gera þær jafnframt ráð fyrir að vextir verði ekki hækkaðir á aukavaxtaákvörðunardegi sem Seðlabankinn hefur boðað 21. desember. Þó sagði Seðlabankinn þegar vaxtaákvörðun var kynnt í vikunni að frekari hækkunar kynni að verða þörf. Greiningardeild Glitnis telur það hins vegar ólíklegt. „Að minnsta kosti þarf eitthvað mikið að gerast til að svo verði svo sem snögg gengislækkun á allra næstu vikum.“ Að sama skapi segir greiningardeild Kaupþings að frekari vaxtahækkanir gætu valdið miklum samdrætti í hagkerfinu á næstu tveimur árum sem endurspeglast myndi í harðri og sársaukafullri lendingu í efnahagslífinu. „Því telur greiningardeild ólíklegt að bankinn vilji feta þá braut,“ segir deildin í nýju sérriti af Peningamálum Seðlabankans. Þá segir Gunnar Árnason, efnahagssérfræðingur SPV, jafnvel frekar líkur á að vextir verði lækkaðir í desember. „Veður geta skipast fljótt í lofti og þá getur verið langt í 26. janúar,“ segir hann.
Mest lesið Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Thule lækkar í prósentu Neytendur Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Sjá meira