Stærsta arðgreiðsla Íslandssögunnar Hafliði Helgason skrifar 18. október 2006 07:30 Einróma samþykkt Hluthafar Kaupþings samþykktu samhljóða arðgreiðslu að verðmæti um 20 milljarðar króna.
Hluthafafundur Kaupþings samþykkti einróma að greiða arð til hluthafa. Arðgreiðslan er í formi hlutafjár í Exista og nemur markaðsvirði arðgreiðslunnar hátt í 20 milljarða króna eða ríflega 890 þúsund hlutir í félaginu. Bankinn heldur eftir fjármagnstekjuskatti af greiðslunni og nemur hún um tveimur milljörðum króna. Með arðgreiðslunum hafa verið rofin gagnkvæm eignatengsl þessara félaga, en Exista er stærsti hluthafi í Kaupþingi. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, sagði bankann aldrei hafa litið á krosseignarhald sem tól í valdatafli viðskiptalífsins. Hitt er annað að það hefur verið mikilvægur þáttur í hugmyndafræði okkar að vinna náið með viðskiptavinum okkar, en halda slíkum tengslum á hreinum viðskiptagrunnni. Hann sagði eignarhlutinn í Exista skýrt dæmi um árangur slíkrar stefnu. Þrátt fyrir það hefur krosseignarhald tilhneigingu til að valda hugarangri á markaði, eins og við höfum séð og því ákváðum við að draga úr því og auka seljanleika eigna bankans. Sigurður segir að með arðgreiðslunni dragi verulega úr eigin hlutafjáreign bankans og skráning Exista dragi fram raunvirði eignarinnar. Exista vandamálið eins og sumir hafa kosið að kalla það, hefur reynst okkur slík byrði að það skilar bankanum 23,8 milljörðum í hagnað á þessu ári. Ég er viss um að margir bankar myndu glaðir vilja glíma við slíkt vandamál. Sigurður gerði að umræðuefni í ræðu sinni samleið Bakkavarar og Kaupþings, en stofnendur Bakkavarar, þeir Ágúst og Lýður Guðmundssynir, eru stærstu eigendur Exista. Sigurður sagði þessi fyrirtæki hafa vaxið hlið við hlið í að verða stór arðsöm alþjóðleg fyrirtæki á skömmum tíma. Þegar leiðir lágu saman var Kaupþing minnsta fjármálafyrirtæki landsins. Bakkavör var lítið annað en hugmynd og skuldavandamál fyrir tíu árum. Nú er Bakkavör fyrirtæki sem er leiðandi alþjóðlegt matvælafyrirtæki sem rekur 46 verksmiðjur og með sextán þúsund starfsmenn í sjö löndum með um 180 milljarða veltu. Arðgreiðslan sem er sú stærsta hérlendis var samþykkt samhljóða.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Siggi Raggi um vaxtakjör bankanna: „Þetta láta Íslendingar bjóða sér kynslóð eftir kynslóð“ Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira
Siggi Raggi um vaxtakjör bankanna: „Þetta láta Íslendingar bjóða sér kynslóð eftir kynslóð“ Viðskipti innlent
Siggi Raggi um vaxtakjör bankanna: „Þetta láta Íslendingar bjóða sér kynslóð eftir kynslóð“ Viðskipti innlent