Endurfjármögnun fyrir næsta ár er langt komin 23. ágúst 2006 07:15
Endurfjármögnun viðskiptabankanna þriggja, Glitnis, KB banka og Landsbankans, fyrir árið 2007 er vel á veg komin. Árshlutauppgjörum bankanna var að mestu vel tekið og eftirspurn eftir skuldabréfum bankanna hefur aukist í kjölfarið á þeim. Vaxtaálag á fimm ára skuldabréfum er þó enn þá vel yfir því sem eðlilegt gæti talist og svo virðist sem fjárfestar sjái tímabundin tækifæri í því. Heildar fjármögnunarþörf Landsbankans fyrir árið 2007 er 2,6 milljarðar evra. Að sögn Matthíasar P. Einarssonar, forstöðumanns í erlendri fjármögnun hjá Landsbankanum, er bankinn í þann mund að loka stórri skuldabréfaútgáfu í Bandaríkjunum sem er í tveimur hlutum, til þriggja og fimm ára. Eftir þann samning mun hann hafa lokið við meira en helming endurfjármögnunarþarfar næsta árs. Þar hefur hann að undanförnu staðið fyrir kynningum fyrir breiðan hóp fjárfesta og fengið góð viðbrögð. Gert var ráð fyrir að samningurinn yrði kláraður í gær. Endurfjármögnunarþörf KB banka fyrir árið 2007 er í kringum fjórir milljarðar króna. Að sögn Guðna Níels Aðalsteinssonar, framkvæmdastjóra fjárstýringar KB banka, hefur bankinn þegar tryggt um áttatíu prósent af útgáfunni. Gert er ráð fyrir að henni verði að fullu lokið septemberlok. KB banki hefur að mestu gefið út bréf í Bandaríkjunum og Asíu. Í upphafi árs tilkynnti bankinn að hann hygðist ekki gefa út á Evrópumarkaði og hefur hann staðið við það. Segir Guðni eftirspurnina þar hafa aukist að undanförnu. Bæði komi það til af því að útgefin bréf séu að komast á gjalddaga og fjárfestar vilji endurnýja þau. Þar að auki séu margir að átta sig á að íslenska áhættan hafi verið orðum aukin. Hyggst bankinn samt sem áður bíða með evrópska útgáfu enn um sinn og sjá ávöxtunarkröfu á markaðnum lækka og eftirspurnina aukast enn. Tómas Kristjánsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Glitnis, segir bankann leitast við að fjármagna sig jafnóðum. Lausafjárstaðan sé þó orðin nógu góð til að dekka vel endurfjármögnunarþörf næsta árs. Til þessa dags hefur bankinn gefið út skuldabréf fyrir meira en 2,7 milljarða króna, sem er jafnt endurfjármögnunarþörf næsta árs. Bankinn hefur að mestu leyti gefið út bréf í Bandaríkjunum en líka í Evrópu og Ástralíu. Tómas segir aðganginn að fjármagni nokkuð greiðan en bendir á að vaxtaálag sé enn verulega hærra en eðlilegt þyki en hafi þó farið lækkandi undanfarnar vikur.
Mest lesið Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Ríteil Kids hættir rekstri Viðskipti innlent Hvar er opið um páskana? Neytendur Fleiri fréttir Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira