Segja ekkert tilefni til að ógilda samruna við Senu 29. júní 2006 08:00 á aðalfundi Dagsbrúnar í febrúar Þórdís Sigurðardóttir stjórnarformaður og Gunnar Smári Egilsson forstjóri Dagsbrúnar. Samkeppniseftirlitið hefur ógilt kaup félagsins á afþreyingarfyrirtækinu Senu, sem áður hét Skífan. MYND/Pjetur
Forstjóri Dagsbrúnar furðar sig á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að ógilda kaup félagsins á afþreyingarfyrirtækinu Senu. Ákvörðuninni hefur verið skotið til Áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Verði samruni fyrirtækjanna ógiltur ganga kaupin til baka. Samkeppniseftirlitið hefur ógilt kaup Dagsbrúnar á Senu. Samruni fyrirtækjanna er sagður styrkja markaðsráðandi stöðu beggja á ýmsum mörkuðum fjölmiðlunar og afþreyingar, sem takmarkað geti samkeppni og gert þeim kleift að "haga verðlagningu sinni, viðskiptakjörum og þjónustu án þess að taka tillit til keppinauta sinna og neytenda," segir í ákvörðuninni. Þá er talið að samkvæmt skilningi samkeppnislaga og í ljósi hlutafjáreignar og tengsla við aðra stóra hluthafa fari Baugur Group með yfirráð í Dagsbrún. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, segir ákvörðunina hafa komið mjög á óvart. Hann segir að búast hefði mátt við einhverjum takmörkuðum skilyrðum á sviðum þar sem rekstur fjölmiðlahluta Dagsbrúnar og Senu skarist að sáralitlu leyti. "Þess í stað fáum við ákvörðun sem byggir á því að Stöð 2 sé markaðsráðandi á markaði sem í raun er ekki annað en stöð 2. Þetta er á skjön við fyrra álit Samkeppnisráðs frá árinu 2000, þar sem sjónvarpsmarkaður er þannig skilgreindur að RÚV og Stöð 2 keppi á sama markaði," segir hann og bendir á að rekstrarform sjónvarpsstöðvanna sé í raun eins. "Þetta er sambland af áskriftar- og auglýsingatekjum. Hlutfallið er meira að segja sambærilegt. Eini munurinn er að sá sem ekki borgar áskriftina að RÚV missir sjónvarpið sitt. Úrskurðurinn er því sambærilegur við að Morgunblaðið væri talið markaðsráðandi meðal áskriftarblaða og ætti ekki í samkeppni við Fréttablaðið." Gunnar Smári hafnar því jafnframt að Baugur fari með yfirráð í Dagsbrún, en í yfirlýsingu Baugs Group í gær kemur fram að eignarhlutur félagisins nemi 31 prósenti. "Yfirtökunefnd og yfirvöld sem fylgjast eiga með slíku hafa enda engar athugasemdir gert," segir Gunnar Smári. Hann segir Dagsbrún ekki verða fyrir fjárhagslegum skaða vegna málsins en óþægilegt sé samt að það tefjist meðan áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur það til umfjöllunar.
Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Innkalla pipar vegna eiturs Neytendur Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira