Viðskipti erlent

Lítil verðbólga í EMU

Evrur Verðbólgan mældist 2,5 prósent á evrusvæðinu í síðasta mánuði.
Evrur Verðbólgan mældist 2,5 prósent á evrusvæðinu í síðasta mánuði.

Verðbólgan mældist 2,5 prósent á evrusvæðinu í maí, samkvæmt útreikningum Evrópusambandsins (ESB). Þetta er 0,1 prósenti meiri verðbólga en mældist á svæðinu í apríl.

Seðlabanki Evrópu hækkaði stýrivexti á evrusvæðinu í síðustu viku um 25 punkta og eru þeir nú 2,75 prósent.

Verðbólgan hefur aukist nokkuð á myntsvæði ESB síðustu mánuði, ekki síst vegna mikilla hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu sem náði sögulegu hámarki í síðasta mánuði. Tölurnar sýna hins vegar að hækkanirnar hafa ekki haft afgerandi áhrif á vísitölu neysluverðs líkt og áður var óttast, að sögn hagfræðinga ESB.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×