Viðskipti erlent

Vísitölurnar falla

Íslenski hlutabréfamarkaðurinn lækkaði í gær í kjölfar birtingu vísitölu neysluverðs, en hækkun hennar var umfram væntingar. Krónan styrktist lítillega sem skýrist af væntingum um frekari strýrivaxtahækknair Seðlabankans.

Þenslueinkenni eru víðar í hagkerfum heimsins og héldu lækkanir á hlutabréfamörkuðum víða um heim áfram vegna væntinga um hækkandi stýrivexti. Nasdaqvísitalan féll um rúm tvö prósent og fór niður fyrir 2.100 stig. Dow Jones vísitalan lækkaði um 0.91 prósent. Sömu áhyggjur herja á bandaríska fjárfesta og þá íslensu um að stýrivextir verði hækkaðir. Ólíku er þó saman að jafna þar sem stýrivextir í Bandaríkjunum eru fimm prósent, en 12,25 prósent hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×