Minni hækkun hlutabréfa í ár 8. janúar 2005 00:01
KB banki mun skila mestum hagnaði skráðra fyrirtækja árin 2004 og 2005 samkvæmt spá greiningardeilda Íslandsbanka og Landsbankans. Hagnaður KB banka í ár verður samkvæmt spánum á bilinu 15,2 til 18,5 milljarðar fyrir árið 2005. Greining Íslandsbanka býst við tapi á fjórða ársfjórðungi ársins 2004 hjá Landsbankanum vegna lakara gengis á hlutabréfamarkaði. Landsbankinn gerir ráð fyrir neikvæðum áhrifum hlutabréfaverðs á afkomu KB banka á síðasta fjórðungi, en minni á Íslandsbanka sem hefur dregið verulega úr hlutabréfaeign sinni innanlands. Fjármálafyrirtæki munu að öllum líkindum njóta mun minni gengishagnaðar á þessu ári, en á því síðasta. Greiningardeildirnar eru tiltölulega bjartsýnar fyrir hönd hlutabréfamarkaðarins fyrir komandi ár. Ekki er talin von til þess að árið í ár verði í nokkurri líkingu við árið í fyrra sem var metár í hækkun hlutabréfa. Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að hækkun hlutabréfa verði fimmtán prósent á árinu og telur miklar hækkanir síðasta árs í samræmi við væntingar um hagnað þeirra á árinu. Þannig hafi kennitölur svo sem hlutfall hagnaðar og virðis og arðsemi eiginfjár ekki breyst að verulegu marki þrátt fyrir miklar hækkanir á árinu. Atli Guðmundsson sérfræðingur Greining Íslandsbanka segir útrás fyrirtækja ráða miklu um framhaldið á hlutabréfamarkaði. Hún verði stóra málið, líkt og á síðasta ári. Hann segir skamma reynslu komna á útrásina og því fylgi varnaðarorð um að hugsanlega vanmeti menn áhættuna af útrásarverkefnum. Útrás bankanna, skráning Actavis í London og yfirtaka Bakkavarar á Geest er meðal þess sem líklegt er til þess að hafa áhrif á þróun hlutabréfaverðs á árinu.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira