Kaupás á leið frá Búri 28. september 2005 00:01
Kaupás, sem rekur matvöruverslunarkeðjurnar Krónuna, Nóatún og 11-11, hefur fært töluverðan hluta af innkaupum sínum út úr Búri ehf., sem er sameiginlegt innkaupa- og dreifingarfyrirtæki Kaupáss, Samkaupa og Olíufélagsins og er í eigu sömu aðila. Ekki er ólíklegt að frekari breytingar verði á samstarfi Kaupáss og Búrs á næstu misserum. "Við áttuðum okkur fljótlega á því, eftir að Norvik keypti Kaupás, að ef við ætluðum að eiga möguleika á því að bjóða hagstæðari verð til neytenda þá þyrftum við að hafa meira forræði yfir okkar málum heldur en við vorum að fá," segir Sigurður Arnar Sigurðsson, forstjóri Kaupáss. "Kaupás er að gera ákveðnar breytingar á sínum innkaupum sem felast í því að þeir taka að sér innkaup á innlendri þurrvöru, það er að segja vörur sem eru keyptar eingöngu af heildsölum," segir Sigurður Á. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Búrs. Framkvæmdastjóri Búrs segir að eftir sem áður verði samstarf í innflutningi á þurrvöru og innkaupum á ávöxtum og grænmeti en viðurkennir að allmikil breyting verði á starfseminni hjá Búri og velta dragist saman. Stjórnendur félagsins búast við að velta félagsins verði einum milljarði minni á þessu ári en því síðasta. Í fyrra velti Búr um sex milljörðum króna. "Búr er ekki hagnaðareining og er rekið á kostnaðargrunni. Gjaldtaka okkar af okkar viðskiptavinum er eingöngu til að mæta beinum kostnaði. Fyrirtækið er þó rekið réttu megin við núllið," segir hann. "Við erum að stíga út úr þessu samstarfi, stofnum okkar eigið vöruhús og semjum við birgja á okkar eigin forsendum um þessar vörur. Þetta er hluti af þeim aðgerðum sem farið var í á þessu ári, að staðsetja Krónuna jafnfætis Bónus í verði. Þá var talið nauðsynlegt að gera skipulagsbreytingar hvað varðar innkaup og það er þess vegna sem við erum í þessum aðgerðum," segir forstjóri Kaupáss.
Mest lesið Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira