Krónan og olían valda verkjum 31. ágúst 2005 00:01
Þau sjávarútvegsfélög sem birta uppgjör sín í Kauphöll Íslands búa við erfiðar aðstæður þessa dagana hvort sem er við veiðar eða vinnslu, enda hafa rekstrarskilyrði sjaldan verið erfiðari en einmitt nú um stundir. Það sama gildir auðvitað um önnur útgerðarfyrirtæki; hátt olíuverð, launaskrið á almennum vinnumarkaði og sterkari króna gera þeim lífið leitt. Þá hafa veiðar á uppsjávarfiski gengið treglega, nær engar loðnuveiðar hafa verið í sumar og lítil veiði á kolmunna. Lækkandi framlegð HB Grandi, annað af tveimur útgerðarfélögum sem er skráð í Kauphöllina, skilaði 414 milljóna króna tapi á öðrum ársfjórðungi sem var nokkuð í takt við væntingar markaðsaðila. Velta félagsins hefur verið að aukast vegna hækkandi afurðaverðs á bolfiski og var 2,7 milljarðar á fjórðungnum. Það var töluvert hærri upphæð en spáð hafði verið. Á móti var hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA), tala sem mikið er horft til þegar meta á árangur sjávarútvegsfélaga, nokkru lægri en búist hafði verið við. EBITDA-hagnaður var 355 milljónir og framlegðarhlutfallið (EBITDA) um þrettán próesent af tekjum samanborið við sautján prósent á öðrum ársfjórðungi árið 2004. "Lægra EBITDA hlutfall ræðst af hærri olíukostnaði útgerðar, kostnaði við upphaf veiða Engeyjar og erfiðu rekstrarumhverfi landvinnslu vegna sterks gengis krónunnar. Þannig lækkaði meðalgengisvísitala krónunnar um 9,2% á öðrum ársfjórðungi samanborið við sama tímabil árið áður," segir í tilkynningu frá HB Granda. Engar loðnuveiðar í sumar Vinnslustöðin, hitt útgerðarfélagið sem er eftir á markaði, skilaði aðeins fjögurra milljóna króna hagnaði á öðrum fjórðungi en um 180 milljónum króna á sama tíma fyrir ári. Framlegð var 217 milljónir á síðasta ársfjórðungi eða 17,3 prósent af tekjum. Stjórnendur félagsins kenna háu olíuverði, dræmri kolmunnaveiði og engri loðuveiði i sumar um að áætlanir félagsins, um einn milljarðs króna EBITDA-hagnað á árinu, verði ekki að veruleika. Vinnslustöðin ræður um tíu prósentum af loðnu- og síldarkvótanum á Íslandsmiðum og því mun lítil loðnuveiði hafa neikvæð áhrif á reksturinn. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, forstjóri Vinnslustöðvarinnar, segir að olíukostnaður hafi líklega hækkað um helming á einu ári. "Á öllum vígstöðum er kostnaður að aukast en tekjurnar að dragast saman. Aflaverðmæti hefur hækkað og vegur á það móti styrkingu krónunnar," segir hann. Berjast í bökkum Þetta leiðir hugann að stöðu landvinnslunnar á Íslandi. Rekstarumhverfið er afar erfitt um þessar mundir vegna hás gengis krónunnar og margir spyrja hvort hún sé að leggjast af á ýmsum svæðum. Samherji hefur tilkynnt um lokun landvinnslu á Stöðvarfirði í byrjun september og ætlar að sameina hana við landvinnsluna á Dalvík en einnig hefur samdráttur verið boðaður hjá fiskvinnslufyrirtækinu Bílddælingi á Bíldudal. "Við höfum orðið var við það sérstaklega síðustu mánuði þegar styrking krónunnar er orðin þetta langvinn og skilaverð fyrir afurðirnir ýmist stendur í stað í krónum eða hefur farið lækkandi, að fyrirtæki sem stóðu ekki beinlínis vel fyrir þessa þróun, eru farin að láta undan síga. Fyrirtæki, sem hafa kannski átt í erfiðleikum, gefa eftir og geta jafnvel farið í gjaldþrot. Stærri fyrirtæki hafa heldur dregið úr framleiðslunni og maður hefur orðið sérstaklega var við þetta í rækjuframleiðslunni," segir Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva Arnar segir jafnframt að stjórnendur fiskvinnslustöðva beri sig frekar illa – og sumir mjög illa – ekki síst þar sem tíma sterkrar krónur er orðið svo langt. Alls staðar samdráttur Hvarvetna hefur þróunin verið sú að stórum fiskvinnslustöðvum hefur fækkað jafnt og þétt. Í Noregi eru um níu stór frystihús en voru 56 árið 1998. Árið 1993 voru ellefu stórar stöðvar í Danmörku en nú eru þær aðeins tvær. Færeyingar hafa sameinað starfsemina og lagt sumar stöðvar niður. Á Íslandi hefur stóru fiskvinnslustöðvunum fækkað um fjórðung á undanförnum áratug og telur Arnar að fyrirtæki, í stærðargráðu sem eitthvað ber á, séu 70-100 talsins. Með tilkomu fiskmarkaða breyttist rekstrarumhverfi fiskvinnslustöðva. Stóru stöðvarnar hafa stækkað en miðlungs fiskvinnslustöðvar hefur fækkað verulega. Litlum og sérhæfðum fiskvinnslufyrirtækjum hefur hins vegar fjölgað. Arnar segir að þróunin hafi að mörgu leyti orðið sú sem menn spáðu. "Það má hins vegar ekki gleyma því að fyrirtæki hafa verið að ná góðum árangri í því umhverfi sem við búum við. Fyrirtækin hafa verið að ná niður hlutfallslegum launakostnaði með tækninýjungum og orðið vel ágengt. Sem betur fer voru menn snemma á ferðinni."
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira