Ævintýraleg ávöxtun á bankabréfum 20. apríl 2005 00:01
Þeir sem keyptu í útboði ríkisbankanna árið 1998 og skráðu sig fyrir fullum hlut hafa náð ævintýralegri ávöxtun, að því gefnu að bréfin séu enn í þeirra eigu. Í þeim útreikningum sem gerðir voru á ávöxtun bréfanna frá 1998 er ekki gert ráð fyrir að hluthafar hafi nýtt sér rétt til hlutafjáraukningar á hverjum tíma. Búnaðarbankinn, stofnaður árið 1930, sameinaðist Kaupþingi í maí árið 2003 og fékk sá sem átti einn hlut í Búnaðarbankanum tæpa 0,037 hluti í sameinuðum banka. Útboðsgengi í Búnaðarbankaútboðinu til almennings var 2,15 en síðasta gengi í KB banka var um 535. Fjárfestingabanki atvinnulífsins (FBA) varð til með sameiningu Fiskveiðasjóðs Íslands, Iðnlánasjóðs, Iðnþróunarsjóðs og Útflutningslánasjóðs og tók til starfa í ársbyrjun 1998. FBA sameinaðist Íslandsbanka vorið 2001 og var skiptihlutfallið talið hluthöfum FBA mjög í hag á þeim tíma. Fengu hluthafar FBA 0,76905 krónur í Íslandsbanka-FBA fyrir hverja krónu sem þeir áttu að nafnverði. Upphaflegt kaupverð í FBA var 1,4 krónur á hlut en síðasta gengi í Íslandsbanka var 12,7. Landsbankinn hefur ekki sameinast öðrum bönkum á tímabilinu. Almenningur fékk að kaupa hlutabréf í Landsbankanum á genginu 1,9 í útboðinu árið 1998 en síðasta viðskiptagengi var um 15,5. Búnaðarbankinn Fjárfesting í útboðinu árið 1998 hefur skilað eftirfarandi ávöxtun: Kaupverð: 8.084 kr. (Nafnverð: 3.760 kr.) Verðmæti í dag: 74.365 kr. (Nafnverð: 139 hlutir) Ávöxtun þann 18.04.2005 að teknu tilliti til arðgreiðslna: 856 prósent Landsbankinn Fjárfesting í útboðinu árið 1998 hefur skilað eftirfarandi ávöxtun: Kaupverð: 104.500 (Nafnverð: 55.000) Verðmæti í dag: 852.500 kr. Ávöxtun þann 18.04.2005 að teknu tilliti til arðgreiðslna: 754 prósent FBA Fjárfesting í útboðinu árið 1998 hefur skilað eftirfarandi ávöxtun: Kaupverð: 433.277 (Nafnverð: 309.484) Verðmæti í dag: 3.022.714 kr. (Nafnverð: 238.009) Ávöxtun þann 18.04.2005 að teknu tilliti til arðgreiðslna: 767 prósent
Innlent Viðskipti Mest lesið Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Viðskipti erlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Sjá meira