Yfirtaka síðasti kostur 16. desember 2005 17:00 Yfirtaka var síðasti kostur. Ef Baugur hefði yfirtekið FL Group hefði yfirtökuverð verið langt undir markaðsvirði. Greiningardeild KB banka segir að yfirtökunefnd sé i vanda vegna þessa máls.
Skarphéðinn Berg Steinarsson, framkvæmdastjóri hjá Baugi, segir að það hefði verið síðasti kostur í stöðunni að fara í yfirtöku á FL Group. "Okkur líður mjög vel með FL Group skráð og held að það sama eigi við um aðra hluthafa." Yfirtökuskylda Baugs Group í FL Group hófst þegar hlutafjárútboði í síðarnefnda félaginu lauk þann 10. nóvember. Samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti hefði Baugur líklega þurft að bjóða 14,05 krónur til annarra hluthafa í FL Group ef félagið hefði kosið að taka félagið yfir. Tilboðsverð skal vera að lágmarki jafnhátt og síðasta viðskiptaverð var daginn áður en tilboðsskylda myndaðist. Fullvíst má telja að yfirtakan hefði ekki gengið eftir þar sem núverandi markaðsgengi FL Group er 17,7 krónur á hlut eða rúmum fjórðungi hærra en tilboðsverð. Greiningardeild KB banka segir að niðurstaða yfirtökunefndar í máli Baugs Group og FL Group skilji eftir fleiri spurningar en hún svari. Baugur Group og Oddaflug seldu um tíu prósent til Landsbankans og gerðu samhliða afleiðusamninga um hlutina sem færir atkvæðisréttinn til bankans en alla áhættu og ávinning af gengisþróun bréfanna á seljendur. KB banki spyr hvort bankinn muni kjósa gegn viðskiptavinum sínum á hluthafafundi og hvort það sé heppilegt fyrir aðra hluthafa að einn hluthafi fari með tíu prósenta eignarhlut en hafi ekki fjárhagslega áhættu af bréfunum. Veltir bankinn fyrir sér stöðu Yfirtökunefndar: ""Afleiðusamningar" sem urðu til þess að komist var hjá yfirtökuskyldu hljóta að setja yfirtökunefndina í vanda. Það liggur í hlutarins eðli að fyrst hægt er að hanna samninga með þessum hætti til að komast hjá yfirtökuskyldu verða úrræði nefndarinnar að teljast bitlítil." Skarphéðinn Berg var spurður að því hvort komið hefði til greina að selja hlutina til nokkurra fjárfesta og dreifa þar með eignarhaldinu á FL Group. Hann segir að viðskiptin á miðvikudaginn séu góð lausn fyrir alla aðila og seljendur njóti góðs af þeirri áhættu sem þeir tóku í hlutafjárútboðinu, sem engan hafði órað fyrir að myndi ganga það vel sem raun bar vitni. Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, sagði í samtali við Fréttablaðið að starfsmenn stofnunarinnar hefðu ekki kynnt sér álit yfirtökunefndar í máli FL Group og því gæti hann ekkert sagt um hvort málið yrði skoðað frekar.
Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Sjá meira