Straumur vonsvikinn með sölu 19. apríl 2005 00:01
Íslandsbanki seldi í dag tvo þriðju hluta í Sjóvá sem bankinn keypti fyrir einu og háflu ári. Kaupendur eru börn Werners Rassmussens. Straumur fjárfestingarbanki lýsir vonbrigðum með hvernig Íslandsbanki stóð að sölunni. Kaupverðið var 17,5 milljarðar króna. Það var eignarhaldsfélagið Þáttur ehf. sem keypti 66,6 prósent í Sjóvá en félagið er í eigu fjárfestingafélagsins Milestone ehf. sem er í eigu barna Werners Rassmussens lyfsala. Karl Wernersson segir að félagið hafi staðið í fjárfestingum í nokkurn tíma og náð ágætum árangri í fjármálageiranum. Kaupin á Sjóvá séu eðlilegt framhald á því enda telji félagið að fjármála- og tryggingageirinn sé mjög áhugaverð starfsgrein. Íslandsbanki hagnaðist um 3,4 milljarða króna á sölunni og segir Bjarni Ármannsson bankastjóri að um góð viðskipti sé að ræða. Með sölunni sé Íslandsbanki að losa um heilmikið af eigið fé auk þess sem hagnaður bankans sé allgóður. Markmiðin með því að losa um eigið fé sé að geta beint því í frekari vöxt, sérstaklega utan Íslands með viðskiptavinum Íslandsbanka. Á sama tíma sé málum hagað þannig að Íslandsbanki geti áfram boðið banka- og vátryggingaþjónustu í einum pakka í útbúum og dreifikerfi. Kaupin voru fjármögnum að einum þriðja hluta með eigin fé Þáttar og tveimur þriðju með lánsfé, meðal annars frá seljandanum Íslandsbanka. Straumur fjárfestingarbanki, sem stærsti hluthafi Íslandsbanka, lýsti í kvöld vonbrigðum hvernig bankinn stóð að sölunni á einni stærstu eign sinni. Kaupandinn sé bæði stjórnarmaður í bankanum og annar stærsti hluthafi hans. Straumur hafði tilkynnt áhuga á að kaupa Sjóvá og lítur svo á að bankinn hafi mismunað hluthöfum sínum og ekki keppt að því að fá sem hæst verð fyrir eignina. Auk þess eigi salan sér stað rétt fyrir birtingu uppgjörs Íslandsbanka fyrir fyrstu 3 mánuði ársins, en Karl Wernerson sé frumherji í bankanum. Straumur mun athuga réttarstöðu sína.
Innlent Viðskipti Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Sjá meira