Deilir um gögn við eftirlit 19. apríl 2005 00:01
Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli Fjármálaeftirlitsins um að KB banki afhendi tiltekin gögn hefur bankinn ekki orðið við þeim með fullnægjandi hætti. Þá hefur bankinn á síðari stigum sagst myndu vísa því til kærunefndar ef Fjármálaeftirlitið ítrekaði tilmæli sín enn frekar og hefur aðili málsins sent viðskiptaráðherra til athugunar hvort það samrýmist lögum um fjármálastofnanir og tilskipanir Evrópusambandsins. Málið varðar vaxtaútreikninga KB banka í viðskiptum við tiltekinn viðskitpavin, sem bankinn sendi Fjármálaeftirlitinu sem svar við fyrirspurn þess. Fjármálaerftirlitið taldi ástæðu til að gera athugasemdir við framsetningu, útskýringar og rökstuðning bankans og óska nánari skýringa sem bankinn varð ekki við með fullnægjandi hætti. Þegar Fjármálaeftirlitið óskaði enn eftir nánari skýringum svaraði bankinn meðal annars með eftirfarandi hætti orðrétt: „Sjái Fjármálaeftirlitið ástæðu til að ítreka kröfu sína um að bankinn sendi bréfið til viðskiptavinarins mun bankinn bera þá ákvörðun undri kærunefnd lögum samkvæmt og óska eftir úrskurði um það hvort eftirlitið hafi heimildir til þess að gera slíka kröfu á hendur bankanum.“ Bankinn lét þó ekki verða af því að kæra Fjármálaeftirlitið, en eftirlitið útskýrði og rökstuddi fyrir bankanum heimildir sínar til að ganga á eftir þessum upplýsingum og vísaði til þess hlutverks síns að tryggja að fjármálastofnanir færu að lögum um og stunduðu eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti. Í leiðinni ítrekaði eftirlitið enn að bankinn sendi umbeðnar upplýsingar til viðskiptavinarins en sem fyrr reyndust þær ófullnægjandi. Í framhaldi af því greindi eftirlitið viðskiptavininum frá því að það hefði gert athugasemd við bankann fyrir að setja fram skjal af því tagi sem hér um ræðir án þess að geta í öllum atriðum rökstutt efni þess, eins og Fjármálaeftirlitið orðar þetta í bréfi. Nú er rúmur mánuður liðin frá því að eftirlitið gerði athugasemdina við KB banka án þess að bankinn hafi brugðist við henni. Í ljósi þessara samskipta Fjármálaeftirlitsins og KB banka vill viðskiptavinurinn að viðskiptaráðuneytið, en Fjármálaeftirlitið heyrir undir það, skeri úr um það hvort sú síðbúna ætlan KB banka í þessu ferli að kæra Fjármálaeftirlitið standist lög.
Innlent Viðskipti Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira