34,5 milljarða hagnaður KB banka á árinu 28. október 2005 20:03 MYND/Vísir
KB banki skilaði 9,7 milljarða króna hagnaði eftir skatta á þriðja ársfjórðungi. Hagnaðurinn á fyrstu níu mánuðum ársins nemur því 34,47 milljörðum króna. Hagnaður á hlut á þriðja ársfjórðungi nam 14,8 krónum, samanborið við 13,5 krónur á hlut á þriðja ársfjórðungi 2004 og 20,9 krónum á hlut á öðrum ársfjórðungi 2005. Þá nemur hagnaður á hlut á fyrstu níu mánuðum ársins 52,7 krónum, samanborið við 26,3 krónur á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár nam 32,3% á fyrstu níu mánuðum ársins en nam 36,7% á sama tímabili árið 2004. Megin niðurstöður ¨ Hagnaður eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins jókst um 163,3% miðað við sama tímabil 2004. ¨ Hagnaður eftir skatta á þriðja ársfjórðungi 2005 jókst um 47,6% miðað við sama tímabil 2004. ¨ Hreinar rekstrartekjur námu 68,9 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins – 94,5% aukning miðað við sama tímabil 2004. ¨ Rekstrarkostnaður nam 23,5 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins – 44,9% aukning miðað við sama tímabil 2004. ¨ Rekstrarkostnaður Kaupþings banka á þriðja ársfjórðungi, án Singer & Friedlander, jókst um 2,3% miðað við þriðja ársfjórðung 2004. ¨ Kostnaðarhlutfall var 34,1% á fyrstu níu mánuðum ársins – var 45,7% á sama tímabili í fyrra. ¨ Heildareignir námu 2.310 milljörðum króna þann 30. september 2005 – 48,6% aukning frá áramótum. ¨ Á fyrstu níu mánuðum ársins mynduðust 70% af rekstrartekjum bankans utan Íslands. ¨ Kaupþing banki yfirtók breska bankann Singer & Friedlander Group plc. í byrjun þriðja ársfjórðungs 2005 og eru rekstrarniðurstöður Singer & Friedlander á þriðja ársfjórðungi nú inni í samstæðureikningi Kaupþings banka. ¨ Óregluleg gjöld vegna yfirtökunnar á Singer & Friedlander, sem voru bókuð á þriðja ársfjórðungi, námu samtals 1,1 milljarði króna. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka, segir uppgjörið sýna traustan rekstur bankans og mikla breidd í tekjumyndun. Arðsemi samstæðunnar hafi verið vel yfir markmiðum bankans eða liðlega 32,3% á fyrstu níu mánuðum ársins. „Samhliða vexti í starfseminni hefur arðsemin verið vel viðunandi og gott aðhald í kostnaði. Áhrif yfirtökunnar á Singer & Friedlander sjást nú í fyrsta skipti í reikningum bankans, en á næstu 18 mánuðum stefnum við að því að auka arðsemi Singer & Friedlander í samræmi við markmið okkar um 15% arðsemi eigin fjár. Vöxtur er í starfsemi bankans á flestum markaðssvæðum, einkum í Bretlandi þar sem þriðjungur af tekjum bankans mynduðust á ársfjórðungnum," segir Hreiðar Már.
Fréttir Innlent Mest lesið Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira