Slippstöðin hefur starfsemi á ný 9. október 2005 00:01
Starfsemi hefst að nýju í Slippstöðinni á Akureyri á þriðjudag og verður nýtt hlutafélag stofnað um reksturinn í dag. Að baki væntanlegu hlutafélagi standa tveir starfsmenn Slippstöðvarinnar auk fyrirtækja og einstaklinga á Akureyri. Anton Benjamínsson framkvæmdastjóri er annar þeirra. Hann segist bjartsýnn á framhaldið og vonast til þess að geta ráðið alla starfsmenn gömlu Slippstöðvarinnar í vinnu auk fjölda fleiri. „Það er þó ekki ljóst enn hve marga við munum geta ráðið strax, enda ræðst það af þeim verkefnum sem við getum aflað okkur á næstu dögum og vikum, til viðbótar við þau verk sem þegar eru í vinnslu," segir hann. Anton vill ekki að svo stöddu gefa upp hvaða fyrirtæki komi að hlutafélaginu. Aðspurður segir hann að þau fyrirtæki sem áður áttu í viðræðum um endurreisn Slippstöðvarinnar, séu ekki í þeim hópi. „Maður veit samt aldrei, þau eru velkomin líka," segir hann. Hann segir að þrátt fyrir að illa hafi farið fyrir fyritækinu óttist hann ekki framhaldið. Helst beri að varast að taka þátt í áhættuverkefnum. „Rekstur í skipaiðnaði hefur gengið ágætlega. Það var því miður aðeins eitt verkefni sem keyrði reksturinn í kaf," segir hann. Á laugardag slitnaði upp úr viðræðum Kaupfélags Eyfirðinga, Sjafnar fjárfestingarfélags og Sandblásturs og málmhúðunar við skiptastjóra þrotabús Slippstöðvarinnar á Akureyri um endurreisn Slippstöðvarinnar, að sögn Sigmundar Guðmundssonar skiptastjóra. Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, segir að menn hafi einfaldlega ekki náð saman um kaup og kjör. „Við höfum svo sem engan einkarétt á samningum við skiptastjóra og ég fagna því að verið sé að semja við nýjan aðila," segir Halldór. „Aðalatriði er að þessi rekstur fari í gang á ný. Það er það sem við vorum að vinna að." Aðspurður segir Halldór ekki útséð um það að KEA komi aftur að málinu. „Ég veit svo sem ekki hvað gerist í framhaldinu og vil ekki útiloka neitt í þeim efnum.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira