Gagnvirkt sjónvarp væntanlegt 27. ágúst 2005 00:01
Hagnaður Símans fyrstu sex mánuði ársins var tæpir 2,2 milljarðar króna. Á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn rúmum 1,2 milljörðum. Tekjur félagsins hafa aukist meira en útgjöld á þessum tíma. Mest var tekjuaukningin á farsímasviði, um 450 milljónir króna. Í uppgjörinu munar þó mest um hagnað af sölu hlutabréfa í Straumi fjárfestingarbanka, sem var 702 milljónir króna. Einnig voru seld hlutabréf í gervihnattafélagi sem skilaði 106 milljónum í hagnað. Arðsemi eigin fjár hækkaði úr 16 prósentum í tæpt 31 prósent. Í tilkynningu Símans til Kauphallar Íslands í gær segir að fjarskiptamarkaðurinn sé í örum vexti og framtíðarhorfur fyrirtækisins góðar. Síminn hafi ráðist í stóra uppfærslu á ADSLkerfinu til að geta sinnt sjónvarpsþjónustu Símans. „Að uppfærslunni lokinni verður hraðinn meiri, sjónvarpsstöðvum í sjónvarpsþjónustu mun fjölga auk þess sem gagnvirkt sjónvarp er handan við hornið,“ segir í tilkynningunni. Í uppgjörinu kemur fram að Síminn á tæp 90 prósent hlutafjár í Íslenska sjónvarpsfélaginu, sem rekur Skjá einn. Á tímabilinu breytti Síminn 750 milljón króna skuld sjónvarpsfélagsins í hlutafé. Ekki er gefið upp á hvaða gengi Síminn keypti hlutabréfin í Skjá einum. Bæði greiningardeild Landsbankans og KB banka segja rekstrarárangur Símans á öðrum ársfjórðungi betri en spáð var. Starfsfólk beggja bankanna gerði ráð fyrir því að Síminn myndi hagnast um 780 milljónir króna. Niðurstaðan var hins vegar 928 milljóna króna hagnaður.
Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira