Ágæt afkoma Verðbréfaþings 12. ágúst 2005 00:01
Hagnaður Eignarhaldsfélagsins Verðbréfaþing hf., sem á og rekur Kauphöll Íslands og Verðbréfaskráningu Íslands, fyrstu sex mánuði ársins nam 36,7 milljónum króna og jókst um tæpar tvær milljónir frá sama tíma í fyrra. Í tilkynningu frá félaginu segir að rekstrartekjur félagsins hafi aukist um 10,3 prósent frá sama tímabili í fyrra en rekstrargjöld jukust um 12,6 prósent. Rekstrartekjur Kauphallar Íslands á fyrri árshelmingi námu 199,4 milljónum króna og rekstrargjöld 179,8 milljónum. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði var því 19,6 milljónir samanborið við 25,4 milljónir árið 2004. Hagnaður nam 21,7 milljónir króna. en var 25,5 milljónir á fyrri árshelmingi 2004, en reiknað var með sjö milljóna króna hagnaði í rekstraráætlun. Í heild voru rekstrartekjur Verðbréfaskráningar Íslands tæplega 111 milljónir króna. og rekstrargjöld 96 milljónir fyrir tímabilið janúar til júní 2005. Rekstrarhagnaður fyrstu 6 mánuði ársins nam því um 14,5 milljónum króna. Að teknu tilliti til fjármagnsliða og skatta nam hagnaður tímabilsins 15 m.kr. Í tilkynningu Eignhaldsfélagsins Verðbréfaþings segir enn fremur að afkoma fyrstu sex mánuði ársins hafi verið heldur betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Bætt afkoma skýrist fyrst og fremst af því að rekstrartekjur hafi verið hærri en gert var ráð fyrir í áætlun en rekstrarkostnaður hafi verið í samræmi við áætlun fyrra hluta ársins. Eignarhaldsfélagið Verðbréfaþing hf. var stofnað árið 2002 um rekstur Kauphallar Íslands og Verðbréfaskráningar Íslands með það fyrir augum að auka hagræði í rekstri félaganna og auka samstarf þeirra. Félögin tvö eru rekin sem sjálfstæðar rekstrareiningar.
Mest lesið Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Sjá meira