Fjórtán tilboð bárust í Símann 18. maí 2005 00:01
Verði fimm prósent verðmunur eða minni á tilboðum hæstu bjóðenda verður viðkomandi aðilum gefinn kostur á að skila inn nýju og hærra verðtilboðið síðar sama dag. Þau tilboð verða opnuð samdægurs í viðurvist fjölmiðla og bjóðenda. Berist ekki ný tilboð frá bjóðendum standa upphafleg tilboð. Sá sem býður hæst eftir þetta ferli fær fyrstur tækifæri til að undirgangast viðræður um kaup á fyrirtækinu á grundvelli kaupsamnings, sem þá þegar mun liggja fyrir og kynntur verður öllum bjóðendum fyrirfram. Með þessu vill einkavæðingarnefnd freista þess að fá sem hæst verð fyrir Símann. Þetta kemur fram í grein sem Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar, skrifar í Markaðinn í dag. Frestur til að skila inn óbindandi tilboðum í Símann rann út í gær. Jón segir í greininni að upplýsingar um fjölda bjóðenda verði gefnar í dag, en nöfn bjóðenda verði ekki gefin upp fyrr en að lokinni yfirferð tilboða. Þá verður bjóðendum, sem uppfylla ákveðin skilyrði, boðið að gera bindandi tilboð. Jón gerir ráð fyrir að lok skilafrest bindandi tilboða verði í lok júlí, en fjöldi bjóðenda ráði þar miklu. Við mat á bindandi kauptilboðum á síðara stigi söluferlisins verður fyrst og fremst litið til verðs. Minnst tveimur vikum áður en bindandi tilboð eru lögð fram þurfa bjóðendur að mynda hópa kjölfestufjárfesta, sem þurfa að samanstanda af minnst þremur óskyldum aðilum. Jón segir við það miðað nú að samningar um sölu á eignarhlut ríkisins í Símanum og greiðsla kaupverðs, sem fram fari í einu lagi, verði að fullu lokið seint í júli eða í fyrri hluta ágústmánaðar. Allir sitja við sama borð og jafnræði sé gætt. "Framkvæmdanefnd um einkavæðingu hefur lagt sig fram um að haga öllum söluundirbúningi með faglegum, trúverðugum og málefnalegum hætti," segir Jón í greininni.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira