Lífeyrissjóður sjómanna hæstur 17. maí 2005 00:01
Raunávöxtun lífeyrissjóðanna var annað árið í röð yfir tíu prósent að meðaltali. Þetta kom fram í máli Friðberts Traustasonar á aðalfundi Landssamtaka lífeyrissjóða sem haldinn var í síðustu viku. Friðbert telur að raunávöxtunin hafi verið um 10,5 prósent að meðaltali í fyrra en 11,3 prósent árið áður. Eftir því sem lífeyrissjóðir fjárfesta meira í innlendum hlutabréfum því betri verður ávöxtun þeirra. Úrvalsvísitalan hækkaði um 59 prósent í fyrra og um 56 prósent árið 2003. Lífeyrissjóður sjómanna sýndi besta raunávöxtun af stóru lífeyrissjóðunum á síðasta ári en raunávöxtun hans nam 16,4 prósentum. Hann skilaði einnig bestu ávöxtuninni árið 2003. Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs sjómanna, segir að tvennt hafi skipt sköpum um árangur síðasta árs. "Við vorum með hærri ávöxtun af okkar innlenda hlutabréfasafni en úrvalsvísitalan. Einnig skiluðu góðar gengisvarnir þessari góðu ávöxtun en krónan styrktist mjög í lok ársins. Þetta tvennt gaf okkur umfram ávöxtun á við aðra lífeyrissjóði." Árni býst ekki við að sjóðurinn, sem sameinast brátt Lífeyrissjóðnum Framsýn, endurtaki sama leik, enda hafi síðustu tvö ár verið einstök. Heildareignir lífeyrissjóðsins uxu um rúma tólf milljarða. Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, er sammála Árna um það að árið 2005 geti orðið hagstætt en varla jafn gott og árin 2003-2004. Heildareignir lífeyrissjóðsins hafa tvöfaldast á fimm árum að því fram kemur á heimasíðu sjóðsins. Samvinnulífeyrissjóðurinn fylgir sjómönnunum fast á hæla en raunávöxtun sjóðsins var yfir 15 prósent á síðasta ári. Lífeyrissjóðurinn Framsýn, sem kemur til með að sameinast Lífeyrissjóði sjómanna þann 1. júlí, kemur svo í þriðja sæti.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira