Tilgangslaust að hitta Kínaforseta 18. apríl 2005 00:01
Forsætisráðherra Japans segir tilgangslaust að hitta forseta Kína ef það verði aðeins til þess að þeir skattyrðist. Bæði löndin krefjast þess að hitt biðjist afsökunar. Heimsókn utanríkisráðherra Japans til Kína, sem nú stendur yfir, hefur ekki verið neinn dans á rósum. Kínverjar krefjast þess að Japanar biðjist afsökunar á kennslubók sem þeir segja að falsi söguna um grimmdarverk japanskra hermanna meðan Kína var hernumið. Japanar krefjast þess hins vegar að Kínverjar biðjist afsökunar á herskáum mótmælum gegn Japan þar sem japanska sendiráðið í Peking var grýtt. Aðstoðarutanríkisráðherra Kína segir að samskipti landanna hafi ekki verið jafn stirð í þrjá áratugi. Bæði forsætisráðherra Japans og forseti Kína munu sitja ráðstefnu Asíuríkja í Jakarta í Indónesíu um næstu helgi. Forsætisráðherra Japans, Junichiro Koizumi, hefur efasemdir um að þeir muni ræða þar tvíhliða málefni landanna. Hann segir að ef hann hitti Hu, forseta Kína, voni hann að ekki verði um harkaleg orðaskipti að ræða. „Við ættum að horfa til framtíðar og ræða um aukin vináttutengsl landanna,“ segir Koizumi. Viðskiptatengsl landanna eru svo náin og sterk að litlar líkur eru til þess að til átaka komi milli þeirra. Engu að síður hafa menn af því talsverðar áhyggjur að deilur þessara efnahagsrisa í Asíu valdi þar óstöðugleika.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Fleiri fréttir Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Sjá meira