Vilja starfa með nýrri stjórn 25. mars 2005 00:01
Stjórnvöld í Rússlandi segjast reiðubúin að starfa með nýrri stjórn í Kirgistan og jafnframt að fyrrverandi forseti landsins gæti fengið hæli í Rússlandi. Stjórnarandstaðan í Kirgistan hefur tilnefnt nýjan forseta og virðist hafa tekið við stjórnartaumunum um allt land. Stjórnarbylting var gerð í Kirgistan í gær þegar andstæðingar forsetans risu upp í miklum mótmælum og hrifsuðu völdin. Ekki er vitað hvar forsetinn fyrrverandi heldur sig en hann virðist hafa flúið land, hugsanlega til nágrannaríkisins Kasakstan, með fjölskyldu sinni. Pútín Rússlandsforseti lýsti því yfir fyrir stundu að hann myndi veita forsetanum hæli ef hann leitaði til Rússlands og, það sem meira er og mikilvægara fyrir nýju valdhafana í Kirgistan, Pútín lagðist ekki á móti nýju stjórninni, sagðist þekkja þetta fólk vel og lýsti því yfir að honum væri mikið í mun að halda góðum samskiptum við landið. Fréttaskýrendur eru á einu máli um að ástæður þess að Pútín tekur svona vel í þessi umskipti séu að miklu leyti þær að ólíkt nýjum valdhöfum í Georgíu og Úkraínu hefur nýja stjórnin í Kirgistan ekki sýnt nein merki þess að reyna að komast undan áhrifavaldi Rússlands og leita í faðm Vesturlanda. Mikil ofbeldisalda fylgdi valdaskiptunum í gær; að minnsta kosti þrír létust í átökum í nótt, byggingar voru brenndar og ræningjar og þjófar léku lausum hala. Svo virðist hins vegar sem aðstæður hafi batnað til muna í dag og nú er allt með kyrrum kjörum í höfuðborginni, Bishkek.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Sjá meira