Skrefi nær lýðræðinu 15. mars 2005 00:01
Stjórnlagaþing Íraka kemur saman í fyrsta sinn í dag þótt enn vanti herslumuninnn upp á að leiðtogar Kúrda og bandalags sjía nái að mynda stjórnarmeirihluta. Að minnsta kosti fimm manns fórust í sjálfsmorðssprengjuárásum í landinu í gær. Síðan Írakar gengu til kosninga í janúarlok hafa sigurvegarar þeirra setið við samningaborðið og reynt að mynda meirihluta sem mun leggja línurnar á stjórnlagaþinginu sem kemur saman í dag. Sjíabandalagið svonefnda og sameinað framboð Kúrda fengu tvo þriðju hluta þingsætanna 275, sem nægir til að koma málum í gegnum þingið. Fyrsta verkefni stjórnlagaþingsins verður að kjósa forsætisnefnd en sú nefnd mun aftur skipa forsætisráðherra sem mun velja með sér ríkisstjórn. Þegar hefur náðst samstaða um hverjir skipa helstu embætti. Jalal Talabani, annar valdamestu stjórnmálamanna Kúrda, verður oddviti forsætisnefndarinnar og þar með forseti en Ibrahim al-Jaafari, leiðtogi Dawa-flokks hófsamra sjía, sest í stól forsætisráðherra. Allar líkur eru á að súnníar fái embætti þingforseta enda er það lykilatriði eigi einhver von að vera til friðar. Hefur nafn Ghazi al-Yawer, núverandi forseta bráðabirgðastjórnarinnar, verið nefnt í því sambandi. Að öðru leyti mun stjórnlagaþingið setja lög og útbúa stjórnarskrá sem síðan verður borin undir þjóðaratkvæði í haust. Verði hún samþykkt verður gengið til þingkosninga í desember. Athygli vekur að Kúrdar og sjíar hafa lýst yfir vilja til að Írak verði skipt upp í sambandsríki súnnía, sjía og Kúrda með valdalítilli alríkisstjórn í Bagdad. Víst er að sú tillaga á eftir að mæta andstöðu súnnía enda lenda flestar olíulindir innan svæða sjía og Kúrda. Róstusamt var í Írak í gær venju samkvæmt. Fjórir borgarar létust í bílsprengjuárás í Bagdad og skömmu síðar dó barn í annarri sprengjuárás í borginni. Yfirvöld í Najaf handtóku í gær mann sem grunaður er um að hafa staðið fyrir mannskæðu sprengjutilræði í ágúst 2003. 85 manns biðu þar bana, þar á meðal Mohammad Baqir al-Hakim, erkiklerkur og einn leiðtoga sjía.
Erlent Fréttir Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira