Danir með hæsta tímakaup í Evrópu 7. mars 2005 00:01
Danir eru með hæsta tímakaup í Evrópu samkvæmt nýrri skýrslu evrópsku atvinnuveitendasamtakanna. Íslendingar eru í 20. sæti og eru þeir með lægsta tímakaup allra Norðurlandabúa. Mjög hefur dregið saman með ríkum og fátækum ríkjum álfunnar og er það meðal annars þakkað dvínandi áhrifum verkalýðsforystunnar. Þetta er í sjötta sinn sem samtökin reikna út tímakaup Evrópubúa. Niðurstöðurnar eru byggðar á tímakaupi rúmlega 30 mismundi starfa í þremur stærðargráðum fyrirtækja og er alls staðar miðað við gildandi tímakaup þann 1. febrúar. Af 48 löndum Evrópu er tímakaupið hæst í Danmörku. Næst kemur Sviss með 83 prósent af tímakaupi Dana og Norðmenn hafa 77 prósent af tímakaupi þeirra. Næstu norrænu frændur okkar eru Svíar í 9. sæti, Færeyingar eru í því 14., Finnar eru í 16. sæti og Íslendingar eru í 20. sæti og þar með lægstir á blaði Norðurlandaþjóða með 46 prósent af tímakaupi Dana. Með öðrum orðum: Tímakaupið hér er meira en helmingi lægra en í Danmörku. Í skýrslu atvinnuveitendanna kemur fram að bilið á milli hinna ríku og fátæku ríkja hefur minnkað mikið á síðustu árum. Þannig var tímakaupið í Danmörku 39 sinnum hærra en í Rúmeníu fyrir fjórum árum en í dag er það „aðeins“ 22 sinnum hærra. Á þessu tímabili hefur tímakaup Dana hækkað um 18 prósent en tímakaup Rúmena um 115 prósent. Evrópusamtök atvinnuveitenda benda á að meiri samfella sé á atvinnumarkaði Evrópu nú en áður og meiri hreyfanleiki vinnuafls sem dragi úr launamun á milli landa. Hin fátækari ríki hafi fjárfest í atvinnulífinu og það leiði til hækkandi kaups, auk þess sem samtökin telja að dvínandi áhrif verkalýðsfélaga dragi úr launamun á milli einstakra ríkja Evrópu þar sem heildarkjarasamningar leiði til lægri launa en einstaklingssamningar.
Erlent Fréttir Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira