Brottflutningur hefst innan skamms 7. mars 2005 00:01
Stjórnvöld Sýrlands og Líbanons náðu samkomulagi í dag um að Sýrlendingar hefji brottflutning hersveita sinna frá Líbanon þegar í þessum mánuði. Forsetar ríkjanna, Bashar al-Assad og Emil Lahoud, hittust á fundi í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, í dag. Samkvæmt samkomulaginu hefjast brottflutningar herliðsins frá Mið og Norður-Líbanon til austurhéraðanna við landamæri Sýrlands. Þetta verða stærstu herflutningar Sýrlendinga síðan þeir blönduðu sér í borgarastríðið í Líbanon fyrir tæpum 30 árum. Nú eru 14 þúsund sýrlenskir hermenn í landinu en voru 40 þúsund þegar mest lét. Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa krafist þess að Sýrlendingar dragi herlið sitt alfarið úr landinu en forsetar ríkjanna tveggja segja að í samkomulaginu sé ekki kveðið nánar á um hvenær hersveitirnar fari að fullu út úr landinu. Kanslari Þýskalands og forseti Frakklands tóku undir kröfu Bandaríkjamanna í dag. Kröfur Líbana um brottnám sýrlenska hersins hafa orðið æ háværari eftir að Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, var ráðinn af dögum um miðjan síðasta mánuð. Sýrlensk stjórnvöld eru sökuð um að hafa staðið á bak við tilræðið en þau neita því staðfastlega.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira