Nærri 130 börn látin vegna kulda 19. febrúar 2005 00:01
Tæplega 130 afgönsk börn hafa látist úr kulda á síðustu vikum. Örvæntingarfullir foreldrar gefa börnunum sínum ópíum til að lina þjáningarnar, segir heilbrigðisráðherra landsins. Mörg hundruð Afganir eru sagðir látnir síðan mikill snjór og frost lagðist yfir meirihluta landsins rétt fyrir áramót. Staðfest er að 128 börn hafa látist vegna kuldans, m.a. úr lungnabólgu. Heilbrigðisráðherra landsins sagði við fréttamenn AP í dag að örvæntingarfullir foreldrar gæfu börnum sínum ópíum í þeirri trú að það læknaði sjúkdómana en það róaði einungis börnin í skamma stund og gerði þau að fíklum. Þrátt fyrir aðstoð stofnana alþjóðasamfélagsins síðastliðin þrjú ár búa margir Afganir enn í búðum þar sem skortir heilsugæslu og skjól fyrir kuldanum. Gul Rahman, einn þeirra sem búa í gömlum flóttamannabúðum, segir að of kalt sé í veðri og að kona og tvö börn hafi dáið í búðunum. Ef yfirvöld geti ekki hjálpað landsmönnum verði þeir í miklum vandræðum. Verst er ástandið í vesturhluta landsins, í Hindu Kush fjöllum, þar sem vegir eru tepptir vegna snjóa og erfitt að koma aðstoð til þeirra sem þurfa á henni að halda.
Erlent Fréttir Mest lesið Hnífstunga á Austurvelli Innlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Þorgerður til í fund og það strax Innlent Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Innlent Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Innlent Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Innlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Ísrael og Sýrland hafi samið um vopnahlé Óska eftir því að vitnisburður um Epstein verði opinberaður Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Sjá meira