Óvæntur halli fellir dollarann 12. janúar 2005 00:01
Viðskiptahalli Bandaríkjanna sló met í nóvember og var 60,3 milljarðar dollara eða 3.800 milljarðar króna. Tíðindin komu á óvart, en búist var við því að hallinn myndi minnka frá fyrra mánuði og verða 54 milljarðar dollara. Fréttirnar felldu gengi dollarans, en mörgum kom á óvart að útflutningur Bandaríkjamanna minnkaði milli mánaða, þrátt fyrir veikingu dollarans og aukna samkeppnishæfni bandarískra útflutningsfyrirtækja. Útflutningur Bandaríkjanna dróst saman um 2,3 prósent. Innflutningur jókst á móti um 1,3 prósent og olíuinnflutningur og innflutningur almennra neysluvara helsta ástæða aukins innflutnings. Búist hafði verið við því að lækkandi olíuverð myndi draga úr viðskiptahallanum Viðbrögð við fréttunum eru mismunandi. Stjórnvöld í Bandaríkjunum leggja áherslu á að vöxtur efnahagslífsins sé meiri en í helstu viðskiptalöndum og muni það vinna á móti hallanum til lengdar. Fjármálaráðherra Bandaríkjanna, John Snow, segir hallann bera vott um sterkt efnahagslíf og vaxandi eftirspurn í hagkerfinu. Hann boðar óbreyttar áherslur í stjórn efnahagsmála og sagði Evrópu og Japan þurfa að örva efnahagslífið heimafyrir. Hagfræðingar hafa efasemdir um að Bandaríkjamenn geti til langframa fjármagnað svo mikinn halla með meiri hagvexti en í helstu viðskiptalöndum. Flest bendi því til þess að dollarinn muni veikjast enn frekar að óbreyttu. Markaðurinn virðist á sama máli og tekur ekki undir með ráðamönnum í Washington. Gengi dollarans féll um 0,78 prósent á fimm mínútum eftir að tölur um viðskiptajöfnuð Bandaríkjanna birtust. Viðskiptahalli Bandaríkjanna fyrstu ellefu mánuði ársins er kominn yfir 35 þúsund milljarða króna og er þegar orðinn mun meiri en me
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira