Hagnaður Landsbankans 700 milljónum minni en í fyrra 28. október 2005 18:24
Hagnaður Landsbanka Íslands eftir skatta nam fimm milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi. Á sama tímabili í fyrra var hagnaðurinn 700 milljónum meiri, eða 5,7 milljarðar. Í tilkynnningu frá bankanum segir að taka verði þó tillit til þess að á þriðja ársfjórðungi þessa árs var viðskiptavild sem myndaðist við samrunann við Burðarás afskrifuð, en hún nam 3,3 milljörðum króna. Hreinar vaxtatekjur Landsbankans á fjórðungnum námu 6,3 milljörðum króna sem er aukning um tæplega 32% á milli ára. Hreinar þjónustutekjur tímabilsins voru tæpir 4,4 milljarðar króna og hafa þær aukist um rúma tvo milljarða síðan í fyrra. Þá námu aðrar tekjur Landsbankans á þriðja ársfjórðungi alls 6,2 milljörðum kr. en á sama fjórðungi síðasta árs námu þær 6,6 milljörðum. Ef litið er til fyrstu níu mánaða ársins 2005 nemur hagnaður Landsbankans fyrir skatta og virðisrýrnun viðskiptavildar 23,3 milljörðum króna samanborið við 14,4 milljarða á sama tímabili í fyrra. Eftir skatta er hagnaðurinn 16 milljarðar sem jafngildir 48% arðsemi eigin fjár. Hreinar vaxtatekjur á tímabilinu námu 15,7 milljörðum kr. samanborið við 10,1 milljarð á fyrstu níu mánuðum ársins 2004 og hafa þær því aukist um 55% á milli ára. Hreinar þjónustutekjur námu 12 milljörðum kr. samanborið við 6,1 milljarð í fyrra. Í lok september námu heildareignir Landsbankans rúmlega 1.142 milljörðum króna og hafa þær aukist um 55% frá áramótum. Eigið fé bankans á sama tímabili hefur aukist um 162% og nam alls 98,7 milljörðum kr. í lok september.
Fréttir Innlent Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira