Schiavo fær að deyja 22. mars 2005 00:01
Allt útlit er fyrir að Terri Schiavo fái að deyja eftir að alríkisdómari hafnaði beiðni foreldra hennar í gær um að útbúnaður sem veitir henni næringu verði tengdur á ný. Þar með sér fyrir endann á málarekstri sem tekið hefur tæp fimm ár. James Whittemore alríkisdómari sagði í úrskurði sínum að foreldrum Terri Schiavo, Bob og Mary Schindler, hefði mistekist að sýna fram á að raunhæfar líkur væru á að dóttir þeirra næði meðvitund á nýjan leik. Terri Schiavo skaddaðist alvarlega á heila árið 1990 þegar hjarta hennar stöðvaðist í stutta stund. Hún er án meðvitundar, getur andað hjálparlaust en þarf að fá næringu í æð. Michael, eiginmaður hennar, hefur undanfarin fimm ár barist fyrir því að næringargjöf verði hætt en foreldrar hennar vonast til að hún nái meðvitund og leggjast því gegn áformum tengdasonar síns. Ættingjar Terri eru miður sín yfir úrskurði dómarans. "Að sjá foreldra mína ganga í gegnum þetta er hörmulegt. Það væri rétt fyrir dómarann að fylgjast með því líka," sagði Bobby Schindler, bróðir Terri, við fréttamenn í gær. Talsmaður Jeb Bush, ríkisstjóra í Flórída og bróður George W. Bush, sagði að yfirmaður sinn væri mjög vonsvikinn yfir úrskurðinum og myndi halda baráttu sinni fyrir lífi Terri áfram. Lögfræðingar fjölskyldunnar sögðu að úrskurðinum yrði áfrýjað. Talsmenn mannréttindasamtaka fögnuðu hins vegar úrskurði Whittenmore. "Það sem þessi ákvörðun þýðir er að frelsi fólks er verndað til að ákveða sitt skapadægur án afskipta stjórnmálamanna," sagði einn þeirra. Engin yfirlýsing liggur hins vegar fyrir um vilja Terri í þessum efnum. Michael Schiavo lýsti í viðtali við Larry King á sjónvarpsstöðinni CNN í fyrrakvöld hneykslun sinni á að þingmenn og forsetinn skyldu hafa blandað sér í einkamál. Lögfræðingur hans sagði í samtali við fréttamenn í gær að réttindi væru brotin á konunni með því að halda henni í þessu ástandi. "Lífið er heilagt en það er frelsið líka, sérstaklega í þessu landi."
Erlent Fréttir Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Fleiri fréttir Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Sjá meira