Segir Berlingske Tidende á villigötum 24. október 2005 12:30
Eignarhaldsfélagið Fons ætlar að selja Iceland Express eftir að hafa selt FL Group Sterling, þar sem félögin verða í samkeppni. Danska blaðið Berlinske Tidende segir að Fons hafi hagnast um ellefu milljarða á því að kaupa og selja Sterling, en Pálmi Haraldsson , sem gerði kaupin, segir blaðið alvarlega á villigötum. Pálmi segir að þegar hann samdi við AP Möller um kaupin á Maersk, sem nú hefur verið sameinað Sterling, hafi verið samkomulag um að trúnaður ríkti um kaupverðið. Danskir fjölmiðlar hafi haldið þvi fram að hann hafi fengið greitt með félaginu en hann geti staðfest að hafa greitt fyrir það með peningum. Einnig sé horft framjá því að fyrir sameininguna hafi Maersk verið tvöfalt umsvifameira félag en Sterling og rekið tvölfalt fleiri þotur. Almar Hilmarsson, framkvæmdastjóri Sterling, segir í viðtali við Berlingske Tidende að Sterling sé hætt við öll áform um Ameríkuflug. Jörgen Lindegaard, forstjóri SAS, segir í viðtali við Ritzau-fréttastofuna að miðað við þann aðskilnað Sterling og Icelandair, sem boðaður er í tilkynningu um kaupin, ætti samstarf SAS og Icelandair að geta haldið áfram. Hluthafafundur verður boðaður í dag eða næstu daga í FL Group þar sem breyttar áherslur félagsins eftir kaupin á Sterling verða kynntar og kosin ný stjórn. Við söluna á Sterling mun eignarhaldsfélagið Fons, sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, eignast verulegan hlut í FL Group þar sem hluti kaupverðsins er greiddur í hlutabréfum í FL Group. Í ljósi þess og að Pálmi verður áfram stjórnarformaður Sterling og Fons á hundrað prósent í Iceland Express, sem er í samkeppni við Icelandair, segir Pálmi það liggja í augum uppi að þeir muni ganga úr stjórninni og að líklega muni einhverjum bankanum verið falið að selja fyrirtækið á næstunni. Pálmi sagðist ekki kannast við að einhver ákveðinn aðili hafi þegar sýnt áhuga á kaupunum. Mikill viðsnúningur hefur orðið í rekstri þess og er það nú rekið með hagnaði. Þá er það að fjölga áfangastöðum á meginlandinu úr tveimur í sjö á þessu ári.
Mest lesið Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Sjá meira