Lykketoft valtur í sessi 29. janúar 2005 00:01
Níu af hverjum tíu sem hafa yfirgefið danska Jafnaðarmannaflokkinn í kosningabaráttunni eru konur og formaðurinn, Mogens Lykketoft, er valtur í sessi. Sighvatur Jónsson, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, skýrir stöðu mála og fer yfir kosningaloforð dönsku flokkanna. Þingkosningar fara fram í Danmörku 8. febrúar næstkomandi og kosningabaráttan er að ná hámarki með tilheyrandi kosningaloforðum. Meðal loforða flokkanna eru: nýtilkomið gjald á notkun dönsku debetkortanna Dankort verður afnumið, heimahjálp aldraðra fær viðbótarfjármagn sem nemur sex milljörðum íslenskra króna, ókeypis verður á listasöfn Danmerkur og skráningarkostnaður verður lægri á umhverfisvænum bílum. Einnig verður barist gegn markaðssetningu óhollrar fæðu og auglýsingum sem beint er að börnum, barnabótasjóður hækkar sem nemur 100 milljörðum íslenskra króna og hærra þak verður á greiðslum til einstæðra mæðra. Síðastnefnda loforðið er frá Jafnaðarmannaflokknum sem spáð er verstu útreið í 30 ár og vangaveltur eru uppi um hvort Mogens Lykketoft, formaður flokksins, hætti í kjölfarið en hann tók við af Poul Nyrup Rasmussen árið 2002. Einstæðar mæður og konur almennt virðast ekki hlusta á jafnaðarmenn því samkvæmt nýrri Gallup-könnun eru konur 90% þeirra kjósenda sem flokkurinn hefur misst í kosningabaráttunni undanfarinn hálfan mánuð. Andstæðingarnir í Venstre stefna á glæstan sigur en átta prósent aðskilja flokkana. En lífið er ekki dans á rósum hjá Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra og formanni Venstre. Líkt og tíðkast hjá stjórnmálamönnum á toppnum er hann vinsæll og um leið umdeildur.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Fleiri fréttir „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Sjá meira