Hermannaveiki í rénun í Noregi 29. maí 2005 00:01
Hermannveikifaraldurinn í Fredrikstad í Noregi, sem lagt hefur fimm menn að velli, virðist í rénum. Frá því í gærmorgun hafa engir nýir sjúklingar á sjúkrahúsinu Östfold greinst með veikina. Stjórnvöld hafa fyrirskipað að öll loftræstikerfi á svæðinu skuli hreinsuð fyrir miðnætti. Fyrir helgi voru 43 sjúklingar smitaðir af hermannveiki lagðir inn á sjúkrahúsið Östfold í Fredrikstað. Af þeim létust fimm og tveir liggja þungt haldnir í öndunarvél. Sex hermannaveikisjúklingar hafa verið útskrifaðir eftir meðferð og lyfjagjöf. Taka á blóðprufur úr starfsfólki sjúkrahússins, sem annast hafa sjúklingana, til að taka af allan grun um að þeir hafi ekki smitast. Engin þeirra rannsókna sem gerðar hafa verið á hermannveiki víðs vegar um verldina síðustu áratugi benda þó til þess að hún smitist manna á milli. Faraldurinn er rekinn til loftræstikerfa í eða við Fredrikstad. Heilbrigðisráðherra hefur fyrirskipað að öll loftæstikerfi á svæðinu verði hreinsuð fyrir miðnætti. Að öðrum kosti verður byggingunum lokað. Atvinnurekendur eru örvæntingafullur enda hafa sum loftræstikerfin ekki verið þrifin frá því þau voru sett upp, eða í allt að þrjá áratugi. Sumir virðast einfaldlega ekki hafa gert sér grein fyrir að slíkt væri nauðsynlegt eða leitt að því hugann að það væri slíkt kerfi í byggingum á þeirra vegum. Starfsmenn fyrirtækja sem sjá um að þjónusta slík kerfi vinna myrkranna á milli enda tekur það einn eða tvo daga að sinna einum viðskiptavini og ljóst að einhverjum byggingum verður lokað. Heilbrigðisráðherra segist skilja ugg atvinnurekenda sem gætu þurft að loka í einhverja daga af þessum sökum en segir að velferð starfsmanna og viðskiptavina sé ofar á forgangslistanum ef grunur leikur á að þeir geti smitast af hermannaveiki í viðkomandi bygginum.
Erlent Fréttir Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira