Líklega dómur í vikunni 29. maí 2005 00:01
Rússneski auðkýfingurinn Míkhaíl Khodorkovskí, mun líklega komast að því í þessari viku hversu lengi hann mun fá að dúsa í fangelsi. Dómarar hafa nú þegar fundið Khodorkovskí sekan um skattsvik þrátt fyrir að réttarhöldum sé ekki lokið. Vinnubrögð þessi og málið í heild sinni hafa gert það að verkum að erlendir fjárfestar hafa margir hverjir fælst frá landinu og frestað samningum við rússnesk fyrirtæki en fjárfestum finnst óöryggið í rússnesku viðskiptalífi einfaldlega of mikið, ríkið stundi það enn að grípa inn í þegar því hentar og það gangi ekki. Þá hefur ímynd Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta einnig beðið hnekki á Vesturlöndum vegna málsins og segja sérfræðingar mál þetta kunni að hafa gríðarlega neikvæð áhrif á efnahag landsins eftir annars ágætan hagvöxt undanfarið. Khodorkovskí gæti átt yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi og búast margir við að hann fái þann dóm. Verið sé að kenna ákveðna lexíu, Khodorkovskí hafi ekki átt að skipta sér af stjórnmálum og þetta kenni öðrum mönnum í svipaðri stöðu og Khodorkovskí var í að svona fari fyrir þeim fari þeir ekki að settum reglum. Hinn 41 árs ára gamli Khodorkovskí var einn ríkasti maður Rússlands fyrir þetta mál en hann stofnaði olíufyrirtækið Yukos á sínum tíma sem nú er á barmi gjaldþrots vegna málsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Innlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Erlent Fleiri fréttir Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Sjá meira