Skoðun

Er Al kaída tilbúningur?

Heimildamyndahátíð - Jón Karl Stefánsson, nemi Okkur hefur verið talin trú um að stríð nútímans standi á milli vestrænna lýðræðisríkja og öflugra hreyfinga hryðjuverkamanna, sérstaklega al-Qaeda sem hefur skv. Paul Wolfowitz bækistöðvar í meira en 60 ríkjum Hryðjuverkamennirnir hafi burði til að tortíma vesturlöndum og þeim hugsjónum sem þar ríkja. Þess vegna væri leyfilegt að beita öllum tiltækum ráðum til að uppræta slík samtök. Sumir ganga svo langt að segja að þetta stríð gegn hryðjuverkum sé stríð milli hins góða (okkar) og hins illa (þeirra). Þessi heimssýn hefur verið notuð til að réttlæta tvær stórar árásir á sjálfstæð ríki; afnámi mannréttindaákvæða og áforma um sífellt aukið eftirlit með almennum borgurum o.fl. Þessi heimssýn hefur haldist þrátt fyrir að þeir sem halda henni á lofti hafi gerst uppvísir um stórfelld ósannindi: Að sterk tengsl hafi verið á milli Osama bin Ladens og Saddam Hussein, að Írakar hafi árið 2003 ráðið yfir miklu magni hættulegra gereyðingavopna, að al Qaeda hafi grafið flókin neðanjarðargöng í Tora Bora fjöllum sem þeir notuðu sem bækistöðvar fyrir komandi stórárásir; o.s.frv. Stenst þessi heimssýn um gríðarlega öflugt net hryðjuverkamanna sem leynast bakvið hvern stein? Við höfum nánast ekki fengið nein gögn sem styðja þessa sýn heldur er ætlast til að við einfaldlega trúum sögunni. Það gæti því komið á óvart að hún byggist á framburði eins manns, Jamal al Fadl, súdönskum vígamanni sem var á flótta undan bin Laden. Þetta var í réttarhöldum, janúar 2001, yfir fjórum mönnum sem ákærðir voru fyrir aðild að sprengiárásum á bandarísku sendiráðin í Keníu og Tansaníu. Saksóknarar vildu einnig sakfella bin Laden en til þess þurftu þeir að sýna fram á að árásirnar væru framdar að hálfu glæpasamtaka. Al Fadl fékk fyrir vitnisburðinn vitnavernd og hundruð þúsunda bandaríkjadala.  Fyrir réttarhöldin var hugtakið al Kaída og hugmyndin um skipulögð risasamtök hryðjuverkamanna undir beinni stjórn bin Ladens óþekkt, enda hefur komið í ljós að frásögn al Fadls var uppspuni. Hinn 19. febrúar hefst heimildamyndahátíð gagnauga.is. Í opnunarmyndinni, the Power of Nigtmares frá BBC, greinir Adam Curtis frá uppgangi tveggja sambærilegra hópa: Ný-íhaldsmanna (neo-conservatives) í Bandaríkjunum sem fylgja hugmyndum Leo Strauss, og þeim sem vilja stofna trúarleg ríki í mið-austurlöndum, fylgismanna Sayyed Qutb. Þessir tveir hópar hafa unnið saman að því að búa til þá martraðarsýn um hættur sem þeir lofa að verja okkur frá. Farið er yfir það hvernig stjórnmálamenn hættu smám saman að fylgja hugsjónum um betri heim og sneru sér meira að því að nota óttann til að halda völdum. Á hátíðinni verða sýndar um 50 heimildamyndir sem er ætlað að vekja athygli á álitamálum og sjónarhornum sem alltof sjaldan fá að heyrast í opinberri umræðu.



Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×