Alfreð boðin Landsvirkjun 3. nóvember 2005 03:30
Alfreð Þorsteinssyni, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, hefur samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verið boðin staða stjórnarformanns Landsvirkjunar ákveði hann að gefa ekki kost á sér í prófkjöri Framsóknarflokksins í lok janúar á næsta ári. Alfreð er stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, en sem kunnugt er hafa farið fram viðræður um hugsanleg kaup ríkisins á 45 prósenta hlut Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun. Talið er hugsanlegt að breytingar í stjórn Landsvirkjunar tengist breyttri stöðu Landsvirkjunar ef af kaupunum verður. Sem stendur eru viðræður um sölu á hlut Reykjavíkurborgar í uppnámi, en fjallað verður um stöðu málsins á borgarráðsfundi í dag. Núverandi stjórnarformaður Landsvirkjunar er Jóhannes Geir Sigurgeirsson. Jóhannes Geir hefur setið í stjórn Landsvirkjunar frá 1995 og varð stjórnarformaður árið 1997. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra skipar í stöðu Jóhannesar Geirs komi til mannaskipta. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar kveðst hafa heyrt að Alfreð hafi verið boðin staða stjórnarformanns Landsvirkjunar. En jafnframt, að Alfreð hafi leitast við að bera slíkan orðróm til baka. Alfreð kveðst hafa staðið að stofnun og uppbyggingu Orkuveitu Reykjavíkur. "Orkuveitan stendur í samkeppni við Landsvirkjun og sú samkeppni á eftir að aukast á næstunni. Það yrði óneitanlega flókin staða sem upp kæmi ef ég ætti að taka að mér stjórnarformennsku í Landsvirkjun við þær aðstæður. Það væri að minnsta kosti eitthvað sem ég yrði að skoða vandlega og ég sé reyndar ekki fyrir mér sem heppilegan valkost. Ég kysi heldur að vinna áfram að uppbyggingu Orkuveitu Reykjavíkur," segir Alfreð Þorsteinsson.
Innlent Stj.mál Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira