Þensla á vinnumarkaði 24. ágúst 2005 00:01
Gissur segir að hluta árstíðabundin sveifla þegar skólafólk fari af vinnumarkaðnum. „En þetta er meira áberandi núna en hefur verið. Það ber því vitni að það er gífurleg þensla á vinnumarkaðnum.“ Ásgeir Jónsson, hagfræðingur hjá KB banka, segir launaskrið líklega farið af stað eins og oft tíðkist hér á landi þegar atvinnuleysi er mjög lítið. Þetta hafi verið algeng þróun á árunum 1970 til 1988. Innflutt vinnuafl, sem megi sjá í fleiri störfum en byggingariðnaði, hafi haldið aftur af þessari þróun hingað til. Eins og Gissur nefnir vantar starfsfólk í fjölmörg þjónustustörf og sjást þess merki í atvinnuauglýsingum. Virðist litlu breyta þó víða megi sjá fjölda útlendinga starfa í byggingariðnaði, á veitingahúsum, við þrif, í ferðaþjónustu og fleiri greinum. Ein birtingarmynd aukinnar eftirspurnar eftir fólki er að laun hækka. Síðustu tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,6 prósent. Í launakönnun Verzlunarmannafélags Reykjavíkur í ár kemur í ljós að sjötíu prósent þátttakenda fá einhvers konar hlunnindi, sem eru hluti af launum, en í fyrra var hlutfallið 43 prósent. Snorri Kristjánsson hjá VR segir síma og bíl vera langalgengustu hlunnindin. Húsasmiðjan brá á það ráð að auglýsa eftir starfsfólki úr eldri aldurshópunum. Guðrún Kristinsdóttir, starfsmannastjóri Húsasmiðjunnar, segir að það hafi gefist gríðarlega vel og um sextíu umsóknir borist. Það hafi komið á óvart að umsækjendur voru yngri en búist var við. Hugmyndin var meðal annars að ná til fólks sem var komið út af vinnumarkaðnum. Lárus Blöndal, deildarstjóri vinnumarkaðsdeildar Hagstofunnar, segir atvinnuþátttöku í aldurshópnum 55 til 74 ára vera tæp 65 prósent. Þetta sé sá hópur sem helst sé hægt að sækja í til að fá á vinnumarkaðinn aftur. Hann bendir þó á að þetta hlutfall hér sé mun hærra en í löndum Evrópusambandsins. Þar hafi verið gerðar áætlanir um að ná þessu hlutfalli yfir fimmtíu prósent.
Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira