Endalok stjórnarskrár ESB? 20. maí 2005 00:01
Forseti Evrópusambandsins segir að hafni Frakkar stjórnarskrá Evrópusambandsins þýði það endalok hennar. Jean Claude Junker, forsætisráðherra Lúxemborgar og núverandi forseti Evrópusambandsins, segir að verði stjórnarskránni hafnað í Frakklandi verði ekki gerð tilraun til þess að smíða hana á nýjan leik og leggja hana fyrir dóm almennings í Evrópu með breyttu sniði. Verði stjórnarskránni hafnað í Frakklandi þýði það einfaldlega að Evrópusambandið hafi færst tuttugu ár aftur í tímann og að Frakkar muni ekki lengur leiða Evrópu. Þá telur Juncker ekki raunhæft að halda áfram með þjóðaratkvæðagreiðslur ef stjórnarskráin hrasar við fyrstu hindrun. Þó að vissulega væri hægt að útiloka Frakka einfaldlega frá stjórnarskránni, og innleiða hana í þeim löndum þar sem hún verður samþykkt, sé það ekki möguleiki sem menn íhugi í fullri alvöru. Því megi í raun segja að hafni Frakkar stjórnarskránni marki það endalok hennar. Aðeins níu dagar eru þangað til kosið verður um stjórnarskrána í Frakklandi og benda skoðanakannanir undanfarinna daga til þess að mjög mjótt verði á mununum. Enn er þó meira en helmingur andsnúinn stjórnarskránni, þó að heldur hafi dregið saman með fylkingunum tveimur. Tuttugu og fimm háttsettir stjórnmálamenn frá allri Evrópu hafa verið fengnir til Frakklands til þess að hjálpa stjórnvöldum í landinu við að telja almenningi trú um ágæti stjórnarskrárinnar.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Innlent Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Erlent Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn Innlent Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Fleiri fréttir Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Sjá meira