Krefst betri kynningar á viðskiptamódeli bankans 25. nóvember 2005 06:00 Hreiðar Már Sigurðsson segir mikið framboð bréfa skýra að mestu hækkaða ávöxtunarkröfu á skuldabréfum bankans í Evrópu. Hann segir bankann þurfa að skýra starfsemi sína betur fyrir fjárfestum.
Forstjóri KB banka segir umræðuna óþægilega og bankann þurfa að kynna stefnu sína betur fyrir fjárfestum. "Það er erfitt fyrir okkur að átta okkur á því hvað kveikir þessa umræðu," segir Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka. "Það er hins vegar að bæði við og íslensku bankarnir höfum gefið út mikið af skuldabréfum á Evrópumarkaði á árinu. Þannig að framboðið hefur verið mjög mikið. Það er örugglega ein ástæða þess að vaxtaálag á bréfum bankanna hefur verið að hækka, þó að menn leiti skýringa í greiningum einstakra banka, þá held ég að ástæðan sé fremur þessi að framboðið hefur verið mikið." Það sem hratt umræðunni af stað var orðrómur um að bankinn hygðist kaupa fyrirtækið Compass. Stjórnendur bankans voru spurðir út í þennan orðróm og tjáðu sig ekki um hann frekar en annan orðróm um einstök viðskipti. Bankinn hefur hins vegar aldrei keypt að fullu neitt annað en önnur fjármálafyrirtæki og miðað við þá sögu er ólíklegt að orðrómurinn sé á rökum reistur. Hreiðar Már segir að hins vegar þurfi bankinn líkast til að skýra sín sjónarmið betur. "Við erum alla daga að reyna að skýra út viðskiptamódel okkar, en það er ljóst að við þurfum að gera betur í því og ætlum okkur að gera það á næstu vikum." Hreiðar Már segist eiga von á því að álag á skuldabréfum bankans geti haldist hærra fram að áramótum, en á von á því að upp úr því fari álagið að lækka aftur. Meðal þess sem talið er til áhættuauka í starfsemi bankans er hversu hátt hlutfall fjármögnunar er sótt á markað fremur en með innlánum. "Þetta er ein ástæðan fyrir því að við keyptum Singer og Friedlander, en með því tvöfölduðum við innlán bankans. Við sjáum að bankar beita mismunandi viðskiptamódelum og það eru stórir bankar sem sækja allt sitt fé á heildsölumarkað og aðrir sem byggja á innlánum. Almennt sjáum við hins vegar þá þróun að meirihluti fjármögnunar sé að koma af markaði. Innlán á mörkuðum eru í fæstum tilvikum að vaxa." Hann segir að uppspretta sparnaðar sé í lífeyrissjóðum og tryggingafélögum sem ávaxta peninga sína á markaði frekar en í innlánum banka. Hreiðar segir þessa umræðu auðvitað ekki þægilega fyrir bankann. "Verkefni okkar er þá að kynna fyrir mönnum hvað við erum að gera."
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira