Óvæntar verðbólgufréttir 11. ágúst 2005 00:01
Vísitala neysluverðs í ágúst 2005 hækkaði um 0,21 prósent frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Markaðsaðilar höfðu spáð því að vísitalan lækkaði örlítið eða stæði í stað. Íslandsbanki segir að hækkanir á fasteignamarkaði og matarverði hafi verið meiri en gert var ráð fyrir. Sumarútsölur héldu áfram og leiddu til tæplega sjö prósenta verðlækkunar á fötum og skóm. Snorri Jakobsson, hjá greiningu KB banka, telur að markaðurinn hafi brugðist of hart við. Gildi vísitölunnar er ekki langt frá því sem gert hafði verið ráð fyrir. "Það má lýsa þessu fremur sem mælingarvanda en að breytingar hafi orðið á undirliggjandi efnahagslegum þáttum en krónan er sem fyrr sterk. Það er til dæmis spurning hvenær Hagstofan mælir áhrifin af útsölunum og verðbreytingum á fasteignamarkaði. Ég held að það hafi kólnað nokkuð á fasteignamarkaði sem mun líklega hafa minni áhrif á vísitöluna á næstu mánuðum." Mikil viðskipti voru í gær á skuldabréfamarkaði en á fyrsta klukkutímanum í Kauphöll Íslands hafði verið verslað með skuldabréf fyrir 7,5 milljarða króna. "Það er mjög jákvætt að markaðurinn taki við sér en hann hefur verið rólegur í sumar," segir Snorri. Ávöxtunarkrafa óverðtryggðra bréfa lækkaði en hækkaði í tilviki verðtryggðra bréfa. Það gefur til kynna að fjárfestar búist við frekari vaxtahækkunum Seðlabankans. Snorri telur að Seðlabankinn bregðist ekki við þessari mælingu með hækkun stýrivaxta. Sjálfur býst hann við 25 punkta hækkun í haust. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,7 prósent en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 0,1 prósent.
Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira