Fæstir vildu sameiningu 9. október 2005 00:01
Áform um sameiningu sveitarfélaga biðu afhroð í kosningum í gær. Af sextán sameiningartillögum voru fimmtán felldar. Sú eina sem náði fram að ganga var á Mið-Austurlandi en samkvæmt henni sameinast Austurbyggð, Fáskrúðsfjarðarhreppur, Fjarðabyggð og Mjóafjarðarhreppur í kjölfar sveitarstjórnarkosninga næsta vor. Dagar Mjóafjarðarhrepp sem fámennsta sveitarfélags landsins eru því senn taldir. Alls voru um 70 þúsund manns á kjörskrá. Liðlega 22 þúsund nýttu atkvæðisrétt sinn, sem þýðir að kjörsókn var 32 prósent. Kosið var í 61 sveitarfélagi og og reyndust 44 prósent kjósenda fylgjandi sameiningu en 56 prósent andvígir. Í fimm sveitarfélögum verða sameiningarkosningar endurteknar innan sex vikna. Fjögur þeirra eru Þingeyjarsýslum; Aðaldælahreppur, Kelduneshreppur, Skútustaðahreppur og Tjörneshreppur, þar sem kosið er um sameiningu við Húsavíkurbæ, Öxarfjarðarhrepp og Raufarhafnarhrepp. Einnig munu íbúar Reykhólahrepps greiða atkvæði að nýju um sameiningu við Dalabyggð og Saurbæjarhrepp. Á Suðurnesjum höfnuðu íbúar Garðs og Sandgerðis að sameinast Reykjanesbæ, sem íbúar þar studdu. Íbúar Vatnsleysustrandar höfnuðu sameiningu við Hafnarfjörð en Hafnfirðingar sögðu hins vegar já. Á Snæfellsnesi var sameiningartillaga felld í öllum sveitarfélögum. Á Vestfjörðum var sameiningu Vesturbyggðar og Tálknafjarðar hafnað í báðum sveitarfélögum. Í Eyjafirði voru það aðeins íbúar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar sem studdu stórsameingu Eyjafjarðarsvæðisins. Sérstaka athygli vekur að hún var felld á Akureyri. Í Grýtubakkahreppi var andstaðan svo rækileg að aðeins tveir kjósendur vildu sameiningu. 99 prósent sögðu nei. Í Árnessýslu var tillaga um sameiningu sveitarfélaga í Ölfusi og Flóa felld af íbúum í öllum sveitarfélögunum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira