Hryðjuverkasveitum verði útrýmt 27. febrúar 2005 00:01
Ariel Sharon vill að Palestínumenn útrými hryðjuverkasveitum í eitt skipti fyrir öll. Annars sér hann engan tilgang í viðræðum og segir Ísraelsmenn þá verða að grípa til aðgerða. Tilgangur íslamska Jihad með árásinni á föstudag var að eyðileggja friðarferlið og svo virðist sem þeim gæti hafa orðið nokkuð ágengt. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, var þungur á brún og hvass í orðavali þegar hann hitti ríkisstjórn sína í dag. Hann sagði engan pólitískan árangur verða fyrr en Palestínumen hefji herferð gegn hryðjuverkahópunum og skipulagi þeirra á landsvæði Palestínumanna. „Undanfarið hefur Ísrael fylgt agaðri stefnu til að stuðla að framförum en það er ljóst að ef ákveðnar aðgerðir Palestínumanna gegn hryðjuverkum hefjast ekki fljótlega neyðist Ísrael til að auka hernaðaraðgerðir sínar til að verja íbúa ríkisins,“ sagði Sharon. Hann taldi víst að það hefði verið íslamska Jihad í Sýrlandi sem skipulagði árásina og þar með um leið að stjórnvöld í Damaskus hefðu lagt blessun sína yfir hana, en því neita ráðamenn í Sýrlandi. Viðbrögð Ahmeds Queria, forsætisráðherra Palestínu, benda til þess að samskipti stjórnvalda séu stirð eftir árásina. Hann sagði að ef Ísraelsmenn ákveði að slíta sambandi sínu við Palestínumenn sé það þeirra val. „Við skiptum okkur ekki af eða grátum slíka ákvörðun. En við segjum að möguleikarnir opnuðust í Sharm el-Sheik og við verðum að þróa þá áfram og leggja okkur fram,“ sagði Qureia.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Innlent Fannst heill á húfi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Fella niður 64 milljarða sekt Trump Erlent Gjörólíkt gengi frá kosningum Innlent Fleiri fréttir Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi Sjá meira