Sækist eftir stuðningi Evrópu 21. febrúar 2005 00:01
Lýðræðisþróun var lykilatriðið í málflutningi George W. Bush Bandaríkjaforseta í gær, á fyrsta degi ferðalags hans um Evrópu. Hann sækir heim þjóðarleiðtoga og áhrifamenn til að treysta tengsl Evrópu og Bandaríkjanna og sækja stuðning Evrópuríkja við aðgerðir Bandaríkjanna í Írak. Annað meginatriðið í málflutningi forsetans var friður fyrir botni Miðjarðarhafs. Bush sagði nauðsynlegt fyrir Vesturlönd að koma á friði í Mið-Austurlöndum. Hann hét stuðningi við friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna. "Stærsta tækifæri okkar og helsta markmið núna er friður í Mið-Austurlöndum," sagði Bush. Hann skoraði einnig á Sýrlendinga að hætta afskiptum af málefnum Líbanons og láta heimamönnum eftir stjórn lands síns. Bandaríkjaforseti hvatti til þess að lýðræði yrði styrkt í nokkrum löndum, þeirra á meðal Rússlandi og Egyptalandi. "Við verðum að minna Rússa á að bandalag okkar byggir á frjálsum fjölmiðlum, þróttmikilli stjórnarandstöðu, valddreifingu og réttarríki," sagði George W. Bush og vísaði til samstarfs Bandaríkjanna og Evrópuríkja. Rússnesk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir að draga úr valddreifingu. Bandaríkjamenn vilja að fleiri ríki komi að því að tryggja öryggi í Írak. "Sumar Evrópuþjóðir tóku þátt í baráttunni fyrir því að frelsa Írak, aðrar ekki," sagði Bush. "Nú er það hagur allra þjóða að takast megi að koma á frjálsu og lýðræðislegu ríki í Írak, sem berst gegn hryðjuverkum, fyrirmynd frelsis og uppspretta raunverulegs stöðugleika á svæðinu." Í dag funda leiðtogar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins í Brussel. Þar er búist við að öll ríki samþykki að leggja eitthvað til þjálfunar íraskra herforingja, staðfesti stuðning sinn við uppbyggingu í Afganistan og að þau hugleiði jafnvel aðkomu Atlantshafsbandalagsins í Mið-Austurlöndum ef Ísraelar og Palestínumenn komast að samkomulagi um frið.
Erlent Fréttir Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Sjá meira