Bakkavör í takt við spár 28. janúar 2005 00:01
Bakkavör hagnaðist um ríflega 1,5 milljarða íslenskra króna á síðasta ári. Hagnaðurinn er svipaður og í fyrra, en þá var færður til bókar söluhagnaður af sjávarútvegsstarfsemi félagsins. Hagnaður fyrir skatta nam tveimur milljörðum króna. Vöxtur í undirliggjandi starfsemi var átján prósent. Hagnaður á fjórða ársfjórðungi jókst um ríflega 40 prósent. Bakkavör gerir upp í breskum pundum og í þeirri mynt jukust tekjur um 18,6 prósent og hagnaður fyrir fjármagnsliði um 18,3 prósent. Ágúst Guðmundsson, stjórnarformaður Bakkavarar segir niðurstöðuna sýna góðan rekstur og hraður vöxtur gæfi ótvírætt til kynna þá sterku stöðu sem félagið hefði áunnið sér meðal viðskiptavina sinna. Hann segir sölu hafa aukist til allra helstu viðskiptavina félagsins. "Markaðsaðstæður hafa verið erfiðar, en samt erum við að vaxa heilmikið. Það sem er mikilvægast er að vöxturinn skilar sér hlutfallslega í afkomu félagsins." Eignabreytingar og samþjöppun hefur orðið á breska smásölumarkaðnum sem er markaðssvæði Bakkavarar. Harðnandi samkeppni smásala í Bretlandi hefur leitt til þrýstings á verð frá framleiðendum. Sala fyrir jólin var einnig minni en búist var við. Þetta hefur leitt til þess að framlegð samkeppnisfyrirtækja Bakkavarar hefur minnkað. Hlutfall rekstrarhagnaðar af tekjum batnar hins vegar lítillega hjá Bakkavör milli áranna 2003 til 2004 samfara vexti. Bakkavör á fimmtungshlut í breska matvælafyrirtækinu Geest og kannar nú áreiðanleika fjárhagsupplýsinga fyrirtækisins með kaup á fyrirtækinu í huga. Ágúst segir gert ráð fyrir að þeirri könnun ljúki í febrúar. Bakkavör hefur stofnað félag í Asíu og hyggst fylgja stærsta viðskiptavini sínum Tesco í uppbyggingu á þeim slóðum. Tesco hefur unnið til sín markaðshlutdeild á breskum smásölumarkaði og Bakkavör nýtur góðs af því. Stjórnendur Bakkavarar meta horfur góðar fyrir þetta ár. "Við búumst við áframhaldandi örum vexti í eftirspurn eftir kældum tilbúnum réttum á heimamarkaði félagsins í Bretlandi.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira