Erlent

Búið að bera kennsl á lík

Danska lögreglan hefur borið kennsl á líkið sem fannst sundurbútað í miðborg Kaupmannahafnar um helgina. Rúmlega eitt hundrað vísbendingar bárust frá almenningi eftir að mynd af líkinu birtist í fjölmiðlum í gær. Lögreglan hefur gefið dönskum fjölmiðlum upp að maðurinn hafi verið 41 árs og búið í Kaupmannahöfn en þessar upplýsingar eru gefnar til að róa fjölmarga sem hafa haft samband við lögregluna og haft áhyggjur af ástvinum sínum sem líkjast manninum. Nafn hins látna verður ekki gefið upp strax þar sem enn á eftir að láta ættingja hans vita af látinu. Lögregla segir að maðurinn hafi verið stunginn nokkrum sinnum með hnífi og líkið af honum bútað niður með sög. Fyrst fundust fætur og hönd af manninum og í gærmorgun sjálfur búkurinn í húsasundi í miðborg Kaupmannahafnar. Rætt hefur verið um í dönskum fjölmiðlum að vélsög hafi verið notuð til verknaðarins en lögregla vill ekki staðfesta það á þessu stigi málsins. Tennur úr líkinu voru bornar saman við tannlæknaskýrslur og þannig tókst að taka af allan vafa um hver maðurinn var. Í morgun voru 50 möguleg nöfn á lista lögreglu en eftir að mynd var birt af andliti hins látna í fjölmiðlum í gær bárust yfir 100 ábendingar frá almenningi. Krufning á líkinu stendur enn yfir og varir fram á kvöld að sögn dönsku lögreglunnar. Næstu skref í rannsókn málsins eru að ræða við fjölskyldu hins látna, vini hans og vinnufélaga, en í morgun var svæðið í kringum Aðalgötu og Klerkagötu í miðborg Kaupmannahafnar, þar sem líkið fannst um helgina, skoðað nánar. Plasthanskar fundust við þá leit sem lögregla telur tengjast málinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×