Útilokar ekki yfirtöku á easyJet 10. ágúst 2005 00:01
Allt er falt, segir stjórnarformaður FL Group vegna ummæla meirihlutaeiganda Easy Jet um að hlutur hans sé ekki til sölu. Hannes segir áhuga á félaginu mikinn og útilokar ekki yfirtöku. FL Group hefur keypt 1,51 prósent til viðbótar í breska lággjaldafélaginu easyJet en fyrir átti félagið 11,5 prósenta hlut. FL Group á því eftir kaupin rúm 13 prósent í félaginu. Eftir kaupin í gær fór af stað orðrómur þess efnis að FL Group stefndi að yfirtöku félagsins en forsvarsmenn FL Group hafa sagt að frekari fjárfestinga sé að vænta á erlendum flugmarkaði í náinni framtíð. Stelios Haji-Ioannou, stofnandi Easy Jet, segist hins vegar ekki ætla að selja hlut sinn í félaginu en hann á, ásamt fjölskyldu sinni, rúm 40 prósent í félaginu. Haji-Ioannou segir í samtali við fréttastofuna Reuters í dag að hann vilji vinna með stjórninni að því að hækka gengið hlutabréfa í fyrirtækinu, þau séu undirverðlög og því muni hann halda þeim hlut sem hann á. Hannes Smárason vildi ekki tjá sig um hvort FL Group ætli sé að yfirtaka félagið en sagði áhuga sinn á félaginu þó mikinn. Það má því lesa út úr yfirlýsingum Hannesar að vel komi til greina að eignast félagið að fullu þótt Haji-Iouanno hafi sagt hlut sinn ekki til sölu. Því eins og Hannes orðar það sjálfur er allt falt. EasyJet var sett á markað árið 2000. FL Group keypti fyrst í fyrirtækinu í október á síðasta ári og á sem fyrr segir nú 13 prósent í félaginu. EasyJet er meðal elstu lággjaldaflugfélaga í Evrópu þótt aðeins séu tíu ár síðan félagið var stofnað.
Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira