Verðmiðinn 400 pens á easyJet 3. desember 2005 06:00 Nýtt verðmatsgengi hljóðar upp á 400 pens á hlut en markaðsvirði er í 350 pensum. Baugur og KB banki hafa bæst í hóp FL Group sem hluthafar.
Citigroup hefur hækkað verðmat sitt á easyJet úr 280 pensum á hlut í 400 pens og mælir með kaupum í breska lággjaldaflugfélaginu. Gengi easyJet stóð í 350 pensum á markaði í gær sem er 12,5 prósentum undir verðmatsgenginu. Bankinn tekur það sérstaklega fram að mikil áhætta fylgi því að eiga bréf í easyJet. Í greiningunni kemur fram að meðal nýrra hluthafa í easyJet eru Baugur Group, sem átti um 2,2 prósent þann 1. nóvember, og KB banki sem fór með um hálft prósent. Báðir aðilar eru jafnframt meðal stærsta eiganda í FL Group. Að viðbættum hlut FL Group nálgast eignarhlutur þessara íslensku fjárfesta um nítján prósent af hlutafé easyJet. Höfundar verðmatsins telja að með innkomu Andrews Harrison í stól forstjóra easyJet sé félagið tilbúið til að taka næstu skref. Bankinn býst við að félagið muni á næstu árum auka hagnað sinn en ekki einungis veltu sem einkennt hefur reksturinn undanfarin misseri. Kaup FL Group á bréfum í easyJet auki vitund stjórnenda félagsins um að hámarka arðsemi félagsins, enda minnki það líkur á yfirtöku af hálfu Íslendinganna ef verðmæti félagsins aukast. Hækkun verðmatsins byggist meðal annars á því að afkoma easyJet á síðasta rekstrarári var umfram væntingar. Citigroup hækkar spár sínar um hagnað easyJet á árunum 2006-"07. Á næsta ári er búist við að hagnaður félagsins hækki um 10,7 prósent á hlut frá fyrri spá en aukist svo um 32 prósent árið 2007 og um 38,5 prósent ári síðar. Citigroup reiknar það út að meðalkaupgengi FL Group á 16,2 prósenta hlut í flugfélaginu hafi verið um 192 pens á hlut. Hefur því virði hlutanna hækkað yfir 80 prósent ef ekki er tekið tillit til styrkingar krónunnar gagnvart pundi. Í greiningunni er gert ráð fyrir að FL Group auki hlut sinn enn frekar þar sem nýlegt hlutafjárútboð gaf félaginu um 65 milljarða til frekari verkefna. Það er þó óljóst hvert endanlegt markmið FL Group sé en Citigroup reiknar með því að FL Group fari fram á sæti í stjórn easyJet.
Mest lesið Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira