Lýsir áhyggjum fjárfesta af fjármögnun KB banka 25. nóvember 2005 06:00 Royal bank of Scotland Segir fjármögnun KB banka enn til of skamms tíma.
Royal Bank of Scotland segir erlenda fjárfesta hafa áhyggjur af nokkrum þáttum sem auka rekstraráhættu KB banka. Bankinn sé meðal annars mjög svo háður lánsfjármörkuðum við fjármögnun starfseminnar. Í umsögn Royal Bank of Scotland, sem er einn af stærstu bönkum heims, um KB banka er bent á að bankinn sé mjög háður lánsfjármörkuðum um fjármögnun. Innlán séu lítill hluti af fjármögnun KB banka þó sameiningin við breska bankann Singer & Friedlander hafi bætt þar úr. Á þriðja ársfjórðungi hafi 65 prósent af heildareignum verið fjármagnaðar að miklu leyti með skammtímalánum og verðbréfaútgáfu. Þetta hafi áhrif á rekstraráhættu bankans. Royal Bank of Scotland (RBS) segir ástæðu til að hafa áhyggjur af þrennu: áhættu vegna vægi einstakra markaðsverðbréfa í eigu KB banka þótt henni hafi verið dreift með kaupum á öðrum fjármálafyrirtækjum, áhættu vegna þess hve háður bankinn er fjármögnun á lánsfjármarkaði, og áhættu vegna stærðar bankans en því eigi íslensk stjórnvöld erfitt með að grípa til fullnægjandi aðgerða lendi bankinn í alvarlegum vandræðum. Umsögn RBS kemur í kjölfar annarrar umsagnar bankans frá 17. nóvember síðastliðnum en Morgunblaðið greindi frá þeirri fyrrnefndu í gær. Taldi RBS þá fjárfesta hafa miklar áhyggjur af stöðu KB banka, meðal annars vegna fjárfestinga hans í áhættusömum eignum, þátttöku í skuldsettum kaupum, vægi einstakra eigna í veltubók og stærðar miðað við íslenskt efnahagslíf. Stjórnendur KB banka komu leiðréttingum á framfæri og var þá ný umsögn gefin út í fyrradag. Þar segir að greitt hafi verið úr áhyggjum varðandi nokkur atriði, meðal annars hvað varði hlutdeild í fjárfestingum Baugs, lán og stöðutöku í skuldsettum kaupum og liði utan efnahagsreiknings sem voru óútskýrðir. Voru veigamiklir þættir í gagnrýninni leiðréttir. "Það er enginn vafi á því að mörgum fjárfestum finnst íslenskt efnahagslíf vera mjög skuldsett og rekstur bankanna sé auðvitað viðkvæmari fyrir því en annar rekstur," segir í umsögninni. Auk þess valdi það áhyggjum að íslenskt hagkerfi sé lítið miðað við stærð bankanna og ákvarðanir séu teknar af fáum aðilum. RBS varar fjárfesta við að taka mark á öllum þeim kjaftasögum sem heyrast en hvetur stjórnendur íslensku bankanna til að efla miðlun upplýsinga og bæta samskipti við markaðsaðila.
Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Fleiri fréttir Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Sjá meira